Skoðaði sjálfbærar aðfangakeðjur í útivistariðnaðinum

Aðalheiður Rut Einvarðsdóttir, sem mun útskrifast með meistaragráðu í verkefnastjórnun við Háskóla Íslands í vor, gerði áhugaverða rannsókn á sjálfbærum aðfangakeðjum í útivistariðnaðinum. Lokaritgerð hennar ber titilinn „Í átt að skilningi á sjálfbærri aðfangakeðjustjórnun: Greining á útivistariðnaðinum“.
Innsýn í sjálbærniáherslur
Áhugi Aðalheiðar á viðfangsefninu kviknaði í námkeiðunum sem hún tók í verkefnastjórnun og námskeiðum um hringrásarhagkerfið og krísustjórnun í ljósi loftslagsbreytinga. „Ég vissi að ég vildi samtvinna sjálbærnina við einhverja aðferðarfræði verkefnastjórnunar," segir hún og bætir við að tískuiðnaðurinn, þar með talið útivistariðnaðurinn, standi frammi fyrir miklum sjálbærniáskorunum en hafi jafnframt mikla möguleika til umbóta. Tilgangur rannsóknarinnar var að bera kennsl á bestu venjur, helstu áskoranir og hvar tækifæri til frekari umbóta í sjálfbærri aðfangakeðjustjórnun liggja.
Hún leitaðist eftir að skilja þær aðgerðir og þá starfshætti sem útivistarvörumerki lögðu mesta áherslu á til að komast að því hvað það er sem hefur áhrif á þessar áherslur. Við úrvinnslu rannsóknarinnar notaði hún innihaldsgreiningu á sjálfbærniskýrslum útivistarvörumerkja til að vinna rannsóknina. Til að auðvelda utanumhald nýtti hún NVivo-hugbúnaðinn en hann gaf góða yfirsýn yfir greiningarferlið.
Óvæntar niðurstöður
Helstu niðurstöður voru að útivistarvörumerkin lögðu mesta áherslu á hráefnisstigið, einkum m.t.t. efnanotkunar, og framleiðslustigið í sjálfbærum starfsháttum sínum. Öll vörumerkin einblíndu sérstaklega á aðgerðir í uppstreymi aðfangakeðjunnar, þar sem mestu sjálbærniáskoranirnar virtust liggja.
Það sem kom Aðalheiði mest á óvart var að ekki fannst marktækur munur á áherslum svokallaðra B Corporation vottaðra vörumerkja og þeirra sem ekki hafa slíka vottun. „Þar sem B Corp vottun felur í sér mjög ítarlegt matsferli sem gerir ríkar kröfur til sjálfbærni hefði ég gert ráð fyrir að slík fyrirtæki sýndu svipaðar áherslur,“ útskýrir hún.
Hagnýtt gildi rannsóknarinnar
Niðurstöðurnar gætu að sögn Aðalheiðar veitt fyrirtækjum innsýn í stjórnun sjálfbærra aðfangakeðja, hvar áherslu eru algengastar og hvar tækifæri til umbóta liggja. Þetta getur hjálpað til við að forgangsraða aðgerðum og bæta gagnsæi í starfsháttum. Rannsóknin veitir jafnframt innsýn í núverandi upplýsingagjöf og leggur grunn að framtíðarrannsóknum sem miða að því að kanna gagnsæi og skilvirkni í sjálfbærum starfsháttum fyrirtækja á mismunandi stigum aðfangakeðjunnar. Fyrir stefnumótendur veita niðurstöðurnar vísbendingar um hvar í aðfangakeðjunni þörf er á að herða reglusetningu og auka hvatningu til að styðja við sjálfbærni í iðnaði sem hefur veruleg umhverfisáhrif.
Rannsóknin undirstrikar einnig mikilvægi neytenda og þátttöku þeirra í sjálfbærri neyslu. „Sjálfbærni fyrirtækja veltur að miklu leyti á þátttöku allra hagsmunaaðila," segir Aðalheiður og nefnir sem dæmi að framlengja þurfi líftíma fatnaðar og halda flíkum í hringrásarhagkerfinu.
Aðalheiður Rut Einvarðsdóttir mun útskrifast með meistaragráðu í verkefnastjórnun við Háskóla Íslands nú í vor. Lokaritgerð hennar ber titilinn Í átt að skilningi á sjálfbærri aðfangakeðjustjórnun: Greining á útivistariðnaðinum.

Lærdómur og framhald
Aðalheiður segir að það að skrifa meistararitgerð líkist frekar maraþonhlaupi en spretthlaupi og leggur áherslu á mikilvægi góðs skipulags og þess að vinna jafnt og þétt í verkefninu. Rannsóknin hefur aukið áhuga hennar á málefnum tengdum sjálfbærni og aðfangakeðjum og hún gæti vel hugsað sér að taka þátt í verkefnum tengdum sjálfbærri þróun í framtíðinni.
Aðalheiður vill þakka leiðbeinanda sínum, Adeel Akmal, doktor í verkefnastjórnun, fyrir frábæra leiðsögn og sérþekkingu sem var lykilatriði við mótun stefnu verkefnisins.
Aðalheiður Rut Einvarðsdóttir mun útskrifast með meistaragráðu í verkefnastjórnun við Háskóla Íslands í vor.