Ragna og Rögnvaldur ráðin aðstoðarrektorar við HÍ

Ragna Benedikta Garðarsdóttir, prófessor við Sálfræðideild, og Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, hafa verið ráðin aðstoðarrektorar við Háskóla Íslands. Ragna verður aðstoðarrektor menntunar og starfsumhverfis og Rögnvaldur aðstoðarrektor vísinda og þverfræðileika.
Tveir aðstoðarrektorar hafa verið starfandi við Háskóla Íslands frá árinu 2016 þegar breytingar voru gerðar á stjórnsýslu skólans. Aðstoðarrektorarnir gegna hlutastarfi (með rannsóknaskyldu) en rektor skilgreinir umboð þeirra í erindisbréfi.

Ragna Benedikta Garðarsdóttir er prófessor í félagssálfræði við Sálfræðideild. Hún lauk BA-prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 1995, MS-prófi í félagssálfræði frá London School of Economics and Political Science 1997 og doktorsprófi í sömu grein frá University of Sussex árið 2006. Ragna starfaði áður við rannsóknir hjá Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála og síðar hjá Félagsvísindastofnun samhliða stundakennslu við Háskóla Íslands. Hún varð lektor árið 2011, fékk framgang í stöðu dósents árið 2014 og í stöðu prófessors árið 2021. Undanfarin tvö ár sat hún í stjórn og samninganefnd Félags prófessora við ríkisháskóla.
Undir Rögnu sem aðstoðarrektor menntunar og starfsumhverfis heyra málefni kennslusviðs, bæði þau sem snúa að nemendaráðgjöf og að umbótum í kennslu. Þá mun Ragna leiða ýmsar nefndir sem lúta að ráðningum, mati á störfum, framgangi og kjaramálum og enn fremur mótun áherslna Háskóla Íslands á sviði sjálfbærni- og umhverfismála, jafnréttismála og samfélagsvirkni og þjónustu. „Með því að leggja áherslu á starfsumhverfið í starfstitli mínum viljum við stjórnendur enn fremur undirstrika að við erum að hlusta á starfsfólk og að við munum berjast fyrir því að Háskóli Íslands verði ekki bara góður heldur frábær vinnustaður. Það er í forgangi hjá mér að draga úr starfsálagi, ekki síst hjá akademísku starfsfólki en það er sá hópur sem ítrekað mælist með mesta streitu í starfi. Ég hef ákveðnar hugmyndir um hvernig megi fínstilla þau kerfi sem halda utan um okkar störf til þess að draga úr álagi en þetta verður langhlaup þar sem við munum byggja vinnu okkar á gögnum og góðu samráði,“ segir Ragna.

Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson er prófessor í iðnaðarverkfræði við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild. Hann lauk CS-prófi í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1991, MS-prófi í verkfræði frá sama skóla árið 1994 og doktorsprófi í tæknistjórnun frá Chalmers tækniháskólanum árið 2003. Rögnvaldur hóf störf við Háskóla Íslands árið 2014 sem dósent og fékk framgang í stöðu prófessors árið 2019. Áður starfaði hann m.a. við Háskólann í Reykjavík og þróunardeild Össurar. Samhliða starfi sínu við Háskóla Íslands hefur Rögnvaldur einnig gegnt hlutastöðu vísindamanns við Gautaborgarháskóla.
Undir Rögnvald sem aðstoðarrektor vísinda og þverfræðileika heyra vísindarannsóknir, nýsköpun, stefnu- og gæðamál ásamt þverfræðileika. „Þverfræðileikinn er mikilvægur á margan hátt. Hann er sérstaklega mikilvægur á umbrotatímum þegar við þurfum að hugsa út fyrir kassann og vinna saman að því að finna ný sjónarhorn. Hann er líka mikilvægur til að tengja háskóla við atvinnulíf og samfélag vegna þess að ef vísindaþekking á að koma að notum þarf hún að blandast praktískri þekkingu af ýmsu tagi. Síðast en ekki síst er þverfræðileikinn mikilvægur fyrir forvitna stúdenta sem vilja komast að því hvernig heimurinn virkar og hvernig hægt er að bæta hann. Þess vegna höfum við áhuga á að auka veg hans við Háskóla Íslands og eitt af mínum hlutverkum er að finna leiðir til þess í samstarfi við starfsfólk og stúdenta,“ segir Rögnvaldur.
