Skip to main content
30. maí 2025

Ráðning Ólafar sem forseta Hugvísindasviðs framlengd um hálft ár

Ólöf Garðarsdóttir

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, hefur framlengt ráðningu Ólafar Garðarsdóttur, prófessors í sagnfræði, sem forseta Hugvísindasviðs skólans um sex mánuði, eða til 1. júlí 2026.

Ólöf tók við starfinu 1. janúar 2021 og rennur fimm ára skipunartími hennar út þann 31. desember 2025. Almennt er ráðið í störf forseta fræðasviða Háskóla Íslands frá 1. júlí þannig að nýr forseti taki við þegar nýtt skólaár hefst og með það að leiðarljósi ákvað rektor að óska eftir því við Ólöfu að gegna starfinu í sex mánuði til viðbótar. Starf forseta Hugvísindasviðs verður því að óbreyttu auglýst snemma á næsta ári og nýr forseti tekur við 1. júlí 2026.

Ólöf Garðarsdóttir hefur starfað við Háskóla Íslands frá árinu 2008, þar af sem prófessor frá árinu 2010. Hún hefur auk þess að hafa gengt starfi forseta Hugvísindasviðs sinnt ýmsum stjórnunarstörfum innan og utan skólans. Rannsóknir hennar eru á sviði lýðfræði og félagssögu. Hún hefur skrifað greinar og bækur um fólksflutninga, frjósemi, sögu heilbrigðis og lýðheilsu með áherslu á heilsufar barna en einnig um sögu barnæsku og fræðslumála. 

Ólöf Garðarsdóttir

Ólöf Garðarsdóttir hefur starfað við Háskóla Íslands frá árinu 2008, þar af sem prófessor frá árinu 2010. Hún hefur auk þess að hafa gengt starfi forseta Hugvísindasviðs sinnt ýmsum stjórnunarstörfum innan og utan skólans. MYND/Kristinn Ingvarsson