Nýsköpunarstarf í Háskóla Íslands aldrei verið blómlegra

Háskóli Íslands á nú hlut í 21 sprotafyrirtæki sem grundvallast á vísinda- og rannsóknastarfi vísindafólks og nemenda skólans og hafa þau aldrei verið fleiri. Skólinn veitir fjölbreyttan stuðning við frumkvöðlastarf sem jafnframt fer stöðugt vaxandi.
Nýsköpunarvikan Iceland Innovation Week stendur nú yfir og líkt og fyrri ár tekur Háskóli Íslands og fyrirtæki honum tengd virkan þátt í vikunni með viðburðum af ýmsu tagi. Vikan gefur jafnframt færi á að beina sjónum að þeim mikla árangri sem skólinn hefur náð í nýsköpunarstarfi á undanförnum árum og áratugum.
Á ársfundi Háskóla Íslands í vikunni benti rektor Háskóla Íslands, Jón Atli Benediktsson, á það í ræðu sinni að sprotafyrirtæki sem skólinn á hlut í hefðu aldrei verið verið fleiri en þau eru sem fyrr segir 21 talsins. Fyrirtækin vinna að afar fjölbreyttum lausnum, allt frá lyfjum gegn sjúkdómum og nýjum lausnum við umhverfisvanda heimsins til hugbúnaðarþróunar fyrir heilbrigðisgeirann og forvarna gegn þunglyndi.
Háskóli Íslands hefur stofnað sérstakt eignarhaldsfélag, Sprotar, til þess að halda utan um hlutina í sprotafyrirtækjunum en markmiðið er þegar fram líða stundir að fjármunir sem skapast í tengslum við starf sprotafyrirtækjanna nýtist til frekari rannsókna og nýsköpunar.
Hægt er að kynna sér sprotafyrirtækin og lausnir þeirra á vef Háskólans og í samantekt um nýsköpun í HÍ.
Háskóli Íslands leggur enn fremur mikla áherslu á að styðja bæði nemendur og starfsfólk á öllum fræðasviðum til frekara frumkvöðlastarfs. Því býður skólinn upp á fjölbreytt námskeið í nýsköpun, bæði innan einstakra námsleiða og fyrir nemendur alls skólans, og veitir ýmiss konar stuðning á vegum Vísinda- og nýsköpunarsviðs skólans.
Enn fremur vinnur skólinn með fjölmörgum aðilum, m.a. á vettvangi Vísindagarða skólans, að hröðlum og verkefnum sem hafa það að markmiði að laða fram nýsköpunarhugmyndir hjá nemendum og starfsfólki og styðja við þróun þeirra. Hægt er að kynna sér þennan víðtæka stuðning á nýsköpunargátt á vef skólans þar sem finna má allt sem viðkemur frumkvöðla- og nýsköpunarstarfi í HÍ.
Háskóli Íslands á nú hlut í 21 sprotafyrirtæki sem grundvallast á vísinda- og rannsóknastarfi vísindafólks og nemenda skólans og hafa þau aldrei verið fleiri. MYND/Kristinn Ingvarsson