Skip to main content
8. október 2024

Nýr bæklingur fyrir þau sem vilja hætta að reykja á þremur tungumálum

Nýr bæklingur fyrir þau sem vilja hætta að reykja á þremur tungumálum - á vefsíðu Háskóla Íslands

Prófessorar við Háskóla Íslands eru meðal höfunda nýs bæklings sem nefnist „Hættu nú alveg“ þar sem fjallað er um afleiðingar reykinga og hvernig hætta má reykingum. Bæklingurinn, sem er á þremur tungumálum, er hluti af ritþrennu um málið sem miðar að því að draga enn frekar úr reykingum í landinu og um leið kostnaði í heilbrigðiskerfinu.

Aðeins 6% Íslendinga reykja nú daglega sem er eitt lægsta reykingahlutfall í heimi. Það eru frábærar fréttir sem sýna hversu góðum árangri öflugar reykingavarnir hérlendis hafa skilað. Þetta þýðir jafnframt að  Ísland getur á næstu tveimur árum orðið fyrsta þjóðin til að ná reykingatíðni undir 5% sem mörg ríki og stofnanir hafa sett sér sem markmið og nota til að skilgreina þjóð sem reyklausa. 

Þótt vel gangi eru enn áskoranir í reykingavörnum hérlendis, ekki síst á meðal innflytjenda þar sem reykingar eru mun algengari. Því er brýnt er að ná til þeirra og allra hinna sem reykja með auðskiljanlegu fræðsluefni og er bæklingurinn Hættu nú alveg saminn með það í huga. Er hann hugsaður sem viðbót við tvö önnur rit sem komu út fyrr á árinu og fjalla um afleiðingar reykinga með áherslu á lungnakrabbamein en líka mikilvægi reykleysis. Til mikils er að vinna því með því að gera Ísland reyklaust sparast tugir milljarða í heilbrigðiskerfinu um leið og reykleysi stuðlar að bætti líðan fólks og allir geta andað að sér hreinna lofti.

Höfundar bæklingsins nýja eru læknarnir Tómas Guðbjartsson, Lára G. Sigurðardóttir og Karl Andersen og teikningar gerði Sigríður Flygenring. Þau hafa komi að meðferð lungnakrabbameins og reykleysismeðferð á Landspítala og SÁÁ og hafa gefið vinnu sína. Tómas og Karl eru jafnframt prófessorar við Háskóla Íslands. MYND/Kristinn Ingvarsson

Ritin þrjú má öll nálgast ókeypis á vefsíðunni www.lungnakrabbamein.is en þau er:

Hættu nú alveg

Ríkulega myndkreyttur bæklingur á mannamáli með svörtum húmor, ætlaður þeim sem vilja hætta að reykja. Helstu meðferðarleiðir eru úskýrðar og sömuleiðis af hverju rafsígarettur og nikótínpúðar eru ekki heppilegir kostir við reykleysismeðferð. Bæklingurinn er til á íslensku, ensku og pólsku.

Lungnakrabbameinsbókin

Bók ætluð heilbrigðisstarfsfólki, nemum í heilbrigðisvísindum og almenningi sem vilja kynna sér allt sem viðkemur lungnakrabbameini. Mest áhersla er lögð á nýjungar í greiningu og meðferð en einnig er í bókinni ítarlegur kafli um reykleysismeðferð.

Lungnakrabbamein – upplýsingar fyrir sjúklinga og aðstandendur

Hér er útskýrt á einföldu máli og með skýringarmyndum í hverju greining og meðferð lungnakrabbameins felst. Einnig eru upplýsingar um hvernig hægt er að hætta reykingum eftir greiningu og áður en meðferð er hafin.

ritin

Ritin þrjú. MYND/Kristinn Ingvarsson

Höfundar bæklingsins nýja eru læknarnir Tómas Guðbjartsson, Lára G. Sigurðardóttir og Karl Andersen og teikningar gerði Sigríður Flygenring. Þau hafa komi að meðferð lungnakrabbameins og reykleysismeðferð á Landspítala og SÁÁ og hafa gefið vinnu sína. Tómas og Karl eru jafnframt prófessorar við Háskóla Íslands.

Útgefandi er Tómas Guðbjartsson og er útgáfan kostuð af fyrirtækjum og sjóðum án nokkurra skilyrða um innihald eða efnistök.

Hægt er að panta útprentuð eintök af bóknum þremur á kostnaðarverði með því að senda tölvupóst á: tomasgud@landspitali.is Þetta á ekki síst við um Hættu nú alveg bæklinginn sem atvinnurekendur get keypt og dreift meðal starfsfólks og þannig stuðlað að reyklausum vinnustað. Hægt er að fá bæklinginn á íslensku en einnig á ensku og pólsku.

Bæklingurinn Hættu nú alveg