Skip to main content
12. maí 2025

Ný tækni sem flýtir lyfjaþróun gegn krabbameini hlaut Vísinda- og nýsköpunarverðlaun HÍ

Verðlaunahafar ásamt Jóni Atla Benediktssyni, rektor HÍ og Kristni Andersen, formanni dómnefndar.

Verkefnið ProDiGY, sem hverfist um nýja tækni sem býður upp á kerfisbundna, hraðvirka og hagkvæma leið til að flýta fyrir lyfjaþróun gegn ýmsum erfiðum sjúkdómum eins og krabbameini, sigraði í samkeppninni um Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands 2025. Úrslit keppninnar voru kunngjörð í Hátíðasal Aðalbyggingar skólans í dag. Þrjú önnur verkefni nemenda og starfsfólks skólans voru einnig verðlaunuð en þau snerta blóðpróf til að greina Parkinson-sjúkdóm, stuðning við nám og inngildingu nemenda með erlendan bakgrunn á Íslandi með mynd- og hljóðtækni og app sem nýtir myndgreiningu á fingraförum til að greina sjaldgæfa erfðasjúkdóma.

Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands voru nú afhent í 27. sinn við Háskóla Íslands en verðlaunin hafa gengið undir ýmsum nöfnum í gegnum tíðina. Markmið þeirra er að laða fram hagnýtanlegar hugmyndir frá nemendum og starfsfólki af öllum fræðasviðum skólans sem nýst geta í samfélagi og atvinnulífi en mikilvægt er að styðja við nýsköpun þar sem hún getur falið í sér gríðarleg verðmæti og haft jákvæð áhrif á íslenskt hagkerfi. 

Að þessu sinni bárust 36 gildar umsóknir í samkeppnina frá öllum fræðasviðum skólans. Við mat á umsóknum skoðaði dómnefnd keppninnar einkum nýnæmi og frumleika, útfærslu, samfélagsleg áhrif, m.a. út frá heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna, og hvort verkefnin væru í samræmi við stefnu skólans og styddu við starfsemi hans.

Veitt voru verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar í fjórum flokkum: Heilsa og heilbrigði, Tækni og framfarir, Samfélag og Hvatningarverðlaun auk þess sem sigurvegari keppninnar í heild var valinn úr hópi verðlaunahafa úr ofangreindum flokkum. 

verdlaunahafar

Jón Jóhannes Jónsson, prófessor við Læknadeild og yfirlæknir, Freyr Jóhannsson, aðjunkt í lífefnafræði og sérfræðingur í klínískri lífefnafræði við Landspítala, Bridget Cassata Fulbright-nemi og Bjarki Guðmundsson sameindalíffræðingur, aðstandendur hugmyndarinnar sem hlaut verðlaun í flokknum Heilsa og heilbrigði ásamt Jóni Atla Benediktssyni, rektor HÍ, og Kristni Andersen, formanni dómnefndar. MYND/Kristinn Ingvarsson

Í flokknum Heilsa og heilbrigði hlaut verkefnið „Blóðpróf til að greina Parkinson-sjúkdóm“ verðlaun að upphæð 1,5 milljónir króna. Að verkefninu standa Jón Jóhannes Jónsson, prófessor við Læknadeild og yfirlæknir, Freyr Jóhannsson, aðjunkt í lífefnafræði og sérfræðingur í klínískri lífefnafræði við Landspítala, Bridget Cassata Fulbright-nemi, Lina Dahbi Erasmus-nemi og Bjarki Guðmundsson sameindalíffræðingur. 

Parkinson-sjúkdómur er eins og kunnugt er algengur, framsækinn taugasjúkdómur þar sem skemmdir á erfðaefni hvatbera eru mikilvægar í meingerð sjúkdómsins. Rannsóknarhópurinn hefur þróað aðferðaferli til að einangra erfðaefni hvatbera úr blóðflögum og blóðvökva. Margvíslegar byggingarskemmdir í erfðaefninu eru síðan greindar með svokallaðri Norðurljósgreiningu.

Dómnefnd keppninnar telur að verkefnið hafi mikið hagnýtingargildi og feli í sér verulega nýsköpun. „Það beitir tækni á nýstárlegan hátt til að efla heilbrigðiskerfið í heild sinni og skilar samfélaginu verulegum ávinningi. Verkefnið stuðlar að bættri þjónustu og eykur möguleika á markvissari fyrirbyggjandi aðgerðum innan heilbrigðiskerfisins. Einnig hefur það möguleika á að skapa lausnir sem gætu nýst á alþjóðavísu.“

gudjon

Guðjón Ólafsson, lektor við Læknadeild og annar forsprakka sigurtillögurnnar ProDiGY, ásamt Jóni Atla Benediktssyni, rektor HÍ, og Kristni Andersen, formanni dómnefndar. MYND/Kristinn Ingvarsson

Í flokknum Tækni og framfarir hlaut verkefnið „ProDiGY – Proximity-driven Discovery of Molecular Glue Targets using Synthetic Human-Yeast Protein Interactions“ verðlaun að upphæð 1,5 milljónir króna. Það var jafnframt sigurvegari samkeppninnar í heild, eins og fyrr segir, og hlutu aðstandendur þess eina milljón króna til viðbótar í verðlaunafé. Að verkefninu standa Guðjón Ólafsson, lektor við Læknadeild, og Eiríkur Steingrímsson, prófessor við sömu deild.

ProDiGY er ný tækni sem byggist á hönnunarlíffræði og nýtir gersveppi og þvinguð próteinsamskipti til að finna skotmörk fyrir sameindalím, nýja tegund lyfja sem hjálpa frumum að losa sig við eða slökkva á sjúkdómsvaldandi próteinum. Aðferðin býður upp á kerfisbundna, hraðvirka og hagkvæma leið til að flýta fyrir lyfjaþróun gegn ýmsum erfiðum sjúkdómum eins og krabbameini. Þannig skapast ný tækifæri til að þróa meðferðir þar sem fáar eða engar lausnir eru til í dag.

„Það er mat dómnefndar að verkefnið feli í sér mikinn samfélagslegan ávinning og nýnæmi. Það býður upp á spennandi framfarir í tækniþróun og sameinar fjölbreyttar rannsóknaraðferðir á áhrifaríkan hátt. Verkefnið svarar skýrri þörf fyrir nýstárlegar lausnir á sviði þar sem hefðbundnar aðferðir hafa ekki dugað til. Með því að brúa bilið milli rannsókna og hagnýtingar getur verkefnið haft víðtæk áhrif á þróun nýrra lyfja,“ segir í umsögn dómnefndar um ProDiGY.

samfelag

David Reimer, prófessor við Menntavísindasvið og Félagsvísindasvið, og Jón Örn Guðbjartsson, sviðsstjóri Markaðs- og samskiptasviðs HÍ, tveir af forsprökkum hugmyndarinnar sem hlaut verðlaun í flokknum Samfélag ásamt Jóni Atla Benediktssyni, rektor HÍ, og Kristni Andersen, formanni dómnefndar. MYND/Kristinn Ingvarsson

Í flokknum Samfélag hlaut verkefnið „INTECHGRATION“ verðlaun að upphæð 1,5 milljónir króna. Að verkefninu standa David Reimer, prófessor við Menntavísindasvið og Félagsvísindasvið, Heiður Jónsdóttir, verkefnastjóri við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild, Markus Kohlmeier, nýdoktor við Félagsvísindasvið, og Jón Örn Guðbjartsson, sviðsstjóri Markaðs- og samskiptasviðs HÍ.

Verkefnið miðar að því að styðja við nám og inngildingu nemenda með erlendan bakgrunn á Íslandi með því að nota mynd- og hljóðtækni til að umbreyta námsefni í móðurmál nemenda. Verkefnið beinist að nemendum á unglingastigi, sérstaklega nemendum með pólskan bakgrunn, og miðar að því að bæta námsárangur þeirra og líðan. Í verkefninu verður árangur þessarar íhlutunar metinn með tilliti til bættrar andlegrar heilsu nemenda, námsmarkmiða þeirra og getu til að hefja nám á framhaldsskólastigi.

Dómnefndin telur að verkefnið sé sérstaklega áhugavert og gott dæmi um árangursríkt þverfræðilegt samstarf. „Það felur í sér frumlega nálgun á áhrifamikla tækni sem opnar almenningi aðgang að fjölbreyttum lausnum og námsefni. Verkefnið stuðlar að aukinni samfélagslegri þátttöku og hefur jákvæð áhrif á inngildingu með því að gera þekkingu og lausnir aðgengilegar breiðum hópi fólks,“ segir enn fremur í umsögn dómnefndar.

hvatning

Lotta María Ellingsen, prófessor við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild, og Hans Tómas Björnsson, prófessor við Læknadeild, aðstandendur hugmyndarinnar sem fékk Hvatningarverðlaun ásamt Jóni Atla Benediktssyni, rektor HÍ, og Kristni Andersen, formanni dómnefndar. MYND/Kristinn Ingvarsson

Hvatningarverðlaun að upphæð 500 þúsund krónur hlaut verkefnið „Greining sjaldgæfra erfðasjúkdóma með fingraförum og snjallsíma“. Að baki verkefninu standa Lotta María Ellingsen, prófessor við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild, Hans Tómas Björnsson, prófessor við Læknadeild, og Viktor Ingi Ágústsson læknanemi.

Verkefnið snýst um að þróa snjallsímaforrit sem notar myndgreiningu á fingraförum til að greina sjaldgæfa erfðasjúkdóma eins og Kabuki-heilkenni. Aðstandendur verkefnisins hafa sýnt fram á að bæði svokölluð tvíkosta aðhvarfsgreining og djúptauganet geta aðgreint fingraför einstaklinga með Kabuki-heilkenni frá heilbrigðum. Langtímamarkmiðið er að til verði einfalt greiningartól fyrir snemmgreiningu erfðasjúkdóma, sem yrði sérstaklega gagnlegt þar sem sérfræðiþekking eða aðgengi að erfðaprófum er takmarkað.

Dómnefndin segir verkefnið hafa möguleika til frekari þróunar auk þess að byggjast á áhugaverðri rannsóknarvinnu innan HÍ. „Tæknin sem verkefnið byggist á gæti opnað fyrir spennandi og jafnvel ófyrirséða möguleika sem gætu haft víðtæk áhrif á viðkomandi svið. Verkefnið samræmist vel stefnu og starfsemi skólans og býður upp á fjölbreytta möguleika til samstarfs við aðila á markaði.“

Samkeppnin um Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Árnason|Faktor og Auðnu-tæknitorgs og verðlaunaafhendingin var hluti af nýsköpunarvikunni Iceland Innovation Week 2025 sem hófst í dag.

Verðlaunahafar ásamt Jóni Atla Benediktssyni, rektor HÍ og Kristni Andersen, formanni dómnefndar.

Verðlaunahafar ásamt Jóni Atla Benediktssyni, rektor HÍ og Kristni Andersen, formanni dómnefndar. MYND/Kristinn Ingvarsson