Skip to main content
8. nóvember 2024

Ný handbók um lýðræði og kosningar fyrir ungt fólk

Ný handbók um lýðræði og kosningar fyrir ungt fólk - á vefsíðu Háskóla Íslands

Lýðræðisvitinn er nýútkomin handbók fyrir ungt fólk á framhaldsskólaaldri sem hefur meðal annars það markmið að skapa umræðu meðal ungs fólks og lýðræði og kosningar og hvernig ungt fólk getur haft áhrif í lýðræðissamfélagi. Höfundar eru fyrrverandi nemendur í stjórnmálafræði og prófessor í sömu grein.

Í Lýðræðisvitanum er fjallað um hverjir eru grunnþættir lýðræðis, af hverju er mikilvægt að standa vörð um grunnstoðir lýðræðis og hvað við getum gert sem almennir borgarar til að hafa áhrif. Í fyrsta hluta hans er rætt um hvað lýðræði er, hver munurinn á beinu og óbeinu lýðræði er, hvernig stjórnkerfið er uppsett á Íslandi, af hverju þátttaka í lýðræði er mikilvæg, hvaða máli gagnrýnin hugsun skiptir og af hverju fólk ætti að láta sig málin varða. Í öðrum hluta bókarinnar er farið yfir nokkrar aðgerðir sem hægt er að grípa til, til dæmis hvernig er hægt að setja upp umræðufund, að koma efni á framfæri til fjölmiðla eða að skrifa í fjölmiðla, að skipuleggja samstarf í gegnum netið, að skrifa umsagnir um lagafrumvörp og halda kosningar. Í þriðja og síðasta hluta handbókarinnar er fjallað um nokkra leiki sem hægt er að fara í, bæði sér og öðrum til gagns og gamans, sem allir hafa það að markmiði að skapa umræðu um ólíkar hliðar og ólík hlutverk í lýðræðissamfélagi svo sem að láta allar raddir hljóma, að afla sér fylgis, að skapa tengsl og að taka þátt.

Með tilkomu fleiri stjórnmálaflokka og flóknara fjölmiðlaumhverfis þarf ungt fólk að hafa mun meira fyrir því en áður að afla sér upplýsinga um stöðu mála í samfélaginu. Á síðustu árum hefur verið ýtt úr vör ýmsum átaksverkefnum og herferðum til þess að auðvelda ungu fólki þetta verk og hvetja það til að kjósa og er Lýðræðisvitanum ætlað að vera eitt framlag til þess. 

Höfundar Lýðræðisvitans eru Sara Þöll Finnbogadóttir og Eva Laufey Eggertsdóttir, fyrrverandi stjórnmálafræðinemar við HÍ, og Eva H. Önnudóttir, prófessor við Stjórnmálafræðideild. Þær unnu Lýðræðisvitann í samstarfi við Samband íslenskra framhaldsskólanema (SÍF), Félag félagsfræðikennara í framhaldsskólum (FFF) og Landssamband ungmennafélaga (LUF). Verkefnið hlaut styrk úr sjóði Háskóla Íslands um samfélagslega mikilvæg verkefni. Útgefandi Lýðræðisvitans er Háskólaútgáfan og uppsetning og hönnun var í höndum Sólveigar E. Söebech Vilhjálmsdóttur.

Nálgast má bókina í rafrænum aðgangi hér.
 

Kápa bókarinnar