Skip to main content
1. júlí 2024

HÍ leiðir Miðstöð í öldrunarfræðum

HÍ leiðir Miðstöð í öldrunarfræðum - á vefsíðu Háskóla Íslands

Skrifað hefur undir þjónustusamninga um nýja Miðstöð í öldrunarfræðum en hún tekur við hlutverki Rannsóknastofu Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum (RHLÖ) og mun Háskóli Íslands gegna leiðandi hlutverki í henni í stað Landspítala. Miðstöðin mun sinna margháttuðum rannsóknum og greiningu í tengslum við stöðu eldra fólks í samfélaginu.

Þjónustusamningar vegna hinnar nýju miðstöðvar voru undirritaðir í Grósku föstudaginn 27. júní. Samningarnir eru á milli félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins og heilbrigðisráðuneytisins annars vegar og Háskóla Íslands hins vegar og eru hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum eldra fólks sem nefnist Gott að eldast. Fram kemur er á vef Stjórnarráðsins að aðgerðaáætlunin innihaldi 19 aðgerðir, þar á meðal eina sem snýr að eflingu Rannsóknastofu Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum (RHLÖ) og aukið hlutverk hennar innan öldrunarfræða hér á landi. Nafninu stofunnar hefur nú verið breytt í Miðstöð í öldunarfræðum sem fyrr segir.

Hlutverk hinnar nýju stofnunar verður m.a. að vinna að rannsóknum sem tengjast aðtæðum og líðan eldra fólks. Hjá Miðstöð í öldrunarfræðum verður meðal annars gerð rannsókn á framgangi og niðurstöðum þróunarverkefna á vegum Gott að eldast. Sex heilbrigðisstofnanir og 22 sveitarfélög taka nú þátt í slíkum þróunarverkefnum sem ganga út á að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Verkefnunum verður fylgt eftir þannig að gagnlegum upplýsingum verði safnað bæði meðan á þeim stendur og við lok þeirra. Miðstöð í öldrunarfræðum verður vistuð á Heilbrigðisvísindastofnun HÍ sem þegar sinnir margháttuðum rannsóknum. 

„Það á að vera gott að eldast og við viljum finna góðar lausnir þar sem við fléttum saman þá þætti heimaþjónustu sem ríkið sér annars vegar um og hins vegar sveitarfélögin. Þróunarverkefnin sem farin eru af stað eru afar spennandi og viðamikil. Til að meta áhrif þeirra er mikilvægt að rannsaka og safna gögnum og Miðstöð í öldrunarfræðum mun þar gegna veigamiklu hlutverki,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra.

Gagnadrifin nálgun á skipulagi þjónustu við eldra fólk og hagnýting gagna spilar stórt hlutverk í aðgerðaáætlunni Gott að eldast og styður við þau markmið sem þar koma fram. Mikilvægt þykir til dæmis að til verði mælaborð þar sem hægt verði að sækja í rauntíma ýmsar tölulegar upplýsingar er varða eldra fólk.

„Meginmarkmiðið með aukinni gagnaöflun og nýtingu gagna er að efla þjónustuna og stuðla að þróun hennar, með tilliti til stefnumótunar, skipulags, vísinda og rannsókna, í þágu þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda,“ segir Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra.
Stefnt er að því að í Miðstöð í öldrunarfræðum verði einnig haldið utan um niðurstöður úr margvíslegum könnunum, meðal annars um líðan og hagi eldra fólks.

 

Þjónustusamningana undirrituðu þau Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra, Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Anna Björg Jónsdóttir, starfandi formaður Miðstöðvar í öldrunarfræðum. Við undirritun voru auk þess viðstödd Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, og Ólafur Þór Gunnarsson, formaður verkefnastjórnar Gott að eldast sem stýrði athöfninni. MYND/Þorkell Þorkelsson

Starfsemin eflist frekar á komandi árum

Háskóli Íslands mun sem fyrr segir gegna leiðandi hlutverki í nýju miðstöðinni. „Rannsóknastofa Háskóla Íslands og Landspítala í öldrunarfræðum hefur staðið fyrir öflugri rannsóknastarfsemi innan öldrunarlækninga og fræðslu um málefni sem tengjast öldrun síðastliðin 25 ár. Miðstöð í öldrunarfræðum tekur nú við þessari mikilvægu starfsemi og er það von Háskóla Íslands að starfsemin muni eflast enn frekar á komandi árum,“ segir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.

„Landspítali sinnir bæði mikilvægri þjónustu og vísindastarfi í þágu aldraðra og við höfum átt gott samstarf við Háskóla Íslands. Málaflokkurinn er mjög yfirgripsmikill og fjölþættur og þótt heilbrigðisþjónusta sé mikilvæg er hún langt í frá eini þátturinn sem hefur áhrif á lífsgæði og velsæld aldraðra. Leiðandi hlutverk Háskóla Íslands mun ýta undir aðkomu fleiri fræðasviða en sem fyrr með öflugri aðkomu Landspítala,“ segir Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala.

Frá undirritun samninganna í Grósku