Skip to main content
30. október 2024

Göngum saman styrkir vísindamenn HÍ um 15 milljónir króna til rannsókna á brjóstakrabbameini 

Göngum saman styrkir vísindamenn HÍ um 15 milljónir króna til rannsókna á brjóstakrabbameini  - á vefsíðu Háskóla Íslands

Félagið Göngum saman veitti í vikunni 15 milljónir króna í rannsóknastyrki til vísindamanna og nemenda við Háskóla Íslands sem nýtast munu til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini. Þetta var í sextánda skipti sem Göngum saman veitir slíka styrki en frá stofnun félagsins árið 2007 hefur það lagt um 165 milljónir króna til brjóstakrabbameinsrannsókna.

Að þessu sinni fengu sex vísindamenn og nemendur styrki en þau eru: 

  • Alda Björk Oddgeirsdóttir, meistaranemi í líf- og læknavísindum , hlaut 2,5 milljónir króna til verkefnisins „Æxlingar úr brjóstakrabbameinssjúklingum: Tjáning TSP-1 viðtakanna CD36 og CD47 í ólíkum undirgerðum brjóstakrabbameins“.    
  • Erna María Jónsdóttir, doktorsnemi við Lyfjafræðideild, hlaut 3,5 milljónir króna til verkefnisins „Utanfrumubólur með EGFR bindlum og CRISPR/Cas9 tækni sem nanólyfjaform gegn EGFR+ þríneikvæðum brjóstakrabbameinum“.    
  • Kristrún Ýr Holm, doktorsnemi í heilbrigðisvísindum, hlaut 2,5 milljónir króna til verkefnisins „Leit að smásameinda lífmerkjum fyrir snemmgreiningu brjóstakrabbameina“.
  • Siggeir Fannar Brynjólfsson, dósent Læknadeild  og sérfræðingur við Ónæmisfræðideild Landspítala, hlaut 2,5 milljónir króna til verkefnisins „Hefur BRCA2 999del5 stökkbreytingin áhrif á ónæmissvar arfbera?“.    
  • Snædís Ragnarsdóttir, doktorsnemi í líf- og læknavísindum, hlaut 1,5 milljónir króna til verkefnisins: „Horfur sjúklinga með BRCA2 stökkbreytt og ER jákvæð brjóstakrabbamein“.
  • Valdís Gunnarsdóttir Þormar, doktorsnemi í heilbrigðisvísindum, hlaut 2,5 milljónir króna til verkefnisins „Tengsl lykilpróteina og stoðvefshlutfalls í krabbameinsvef við sjúkdómsháða lifun brjóstakrabbameinssjúklinga“.

Um Göngum saman

Göngum saman var stofnað árið 2007 af Gunnhildi Óskarsdóttur, prófessors við Menntavísindasvið HÍ, en hún lést árið 2023. Helsti tilgangur félagsins er að safna fé til grunnrannsókna sem auka skilning okkar á uppruna og eðli krabbameins í brjóstum. Rannsóknarverkefni eru metin skv. faglegu gæðamati en auk Vísindanefndar Göngum saman leggur ytri ráðgjafanefnd mat á umsóknirnar.

Styrkveitingin byggist að mestu leyti á frjálsum framlögum einstaklinga sem hafa lagt hafa sitt af mörkum með þátttöku í fjáröflunum félagsins. Þær voru margvíslegar í ár, s.s. áheit á hlaupara í Reykjavíkurmaraþoninu, kaupum á Brjóstasnúðum Brauð & co í tilefni Mæðradagsins, þátttaka í styrktargöngu Volcano Trails í Þórsmörk og kaup á ýmsum söluvarningi félagsins. Einnig hafa ýmis félagasamtök, fyrirtæki og einstaklingar lagt Göngum saman lið, en megináhersla er á að öll framlög renni óskipt í vísindasjóð félagsins. Göngum saman hefur veitt um 165 milljónir króna til grunnrannsókna á brjóstakrabbameini frá stofnun félagsins.

Vefsíða Göngum saman

Göngum saman á Facebook

Styrkþegar og fulltrúar þeirra við afhendingu styrkjanna frá Göngum saman. Frá vinstri: Valdís Gunnarsdóttir Þormar, Snædís Ragnarsdóttir, Siggeir Fannar Brynjólfsson, Kristrún Ýr Holm, Berglind Eva Benediktsdóttir, leiðbeinandi Ernu Maríu Jónsdóttur, og Alda Björk Oddgeirsdóttir.