Skip to main content
5. júní 2025

Benedikt veitt heiðursdoktorsnafnbót við bandarískan háskóla

Benedikt veitt heiðursdoktorsnafnbót við bandarískan háskóla - á vefsíðu Háskóla Íslands

Benedikt Bogason, prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands og forseti Hæstaréttar, var sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við lagadeild Ohio Northern University í Bandaríkjunum við útskrift nemenda úr deildinni í maí. Háskólinn í Ohio var stofnaður árið 1871 og lagadeild hans árið 1885.

Lagadeild Háskóla Íslands og Ohio Northern University hafa í 65 ár átt í samstarfi sem felst í gagnkvæmum og árlegum heimsóknum nemenda. Af hálfu Íslands hafði Ármann Snævarr, prófessor og síðar rektor og hæstaréttardómari, forgöngu um að efna til samstarfsins en hann varð einnig heiðursdoktor við skólann í Ohio árið 1973. Með samstarfinu hefur mikill fjöldi laganema fengið tækifæri til að kynna sér lagahefðir og réttarkerfi sem eru um margt ólík landa þeirra til að víkka sjóndeildarhringinn. Á liðnum árum hefur bandarísku nemendunum sem komið hafa til landsins verið boðið í heimsókn til Hæstaréttar þar sem þeir hafa fengið kynningu á störfum réttarins og íslenskri dómstólaskipan.

Benedikt Bogason, prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands og forseti Hæstaréttar, ásamt Jóni Atla Benediktssyni, rektor HÍ, á athöfn í Hátíðasal á dögunum. MYND/Kristinn Ingvarsson

Í ávarpi sínu við útskriftina fjallaði Benedikt um langt og farsælt samstarf lagadeilda skólanna. Einnig lagði hann áherslu á að samhliða útskrift gengi lögfræðingur undir þá siðferðilegu skyldu að standa vörð um réttarríkið í öllum sínum störfum. Að öðrum kosti réði geðþótti, lögin glötuðu gildi sínu og námið þjónaði ekki tilgangi. Grunnstoðir réttarríkisins væru að enginn væri hafinn yfir lögin og þau ættu að vera aðgengileg og gilda jafnt um alla. Tók Benedikt fram að þetta virtust augljós sannindi en sagan og atburðir undanfarið minntu okkur á að ekkert væri gefið í þeim efnum. Því þyrftu allir að leggjast á eitt og standa vörð um réttarríkið og mannréttindi. 
 

Benedikt Bogason, prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands og forseti Hæstaréttar, var sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við lagadeild Ohio Northern University í Bandaríkjunum við útskrift nemenda úr deildinni í maí.
+1

Benedikt Bogason, prófessor við Lagadeild Háskóla Íslands og forseti Hæstaréttar, var sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við lagadeild Ohio Northern University í Bandaríkjunum við útskrift nemenda úr deildinni í maí.