Skip to main content

Fjármálahagfræði

Fjármálahagfræði

Félagsvísindasvið

Fjármálahagfræði (ekki tekið inn í námið 2024-2025)

MS gráða – 120 einingar

Í meistaranámi í fjármálahagfræði er lögð áhersla á samspil fjármálafræði og hagfræði  á hagnýtum grundvelli.  Gert er ráð fyrir því að nemendur hafi góða undirstöðu í stærðfræði og tölfræði og geti því tileinkað sér megindlega aðferðafræði í fjármálum sem og tæknilega hagfræðigreiningu.

Skipulag náms

X

Eindahagfræði í meistaranámi (HAG125F)

Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum grundvallaratriði í fræðilegri og hagnýttri rekstrarhagfræði (microeconomics) og hvernig unnt er að beita henni við hagræna greiningu ákvarðanatöku, hvort heldur neytenda eða við rekstur fyrirtækja og stofnana, bæði á  markaði og á sviðum hins opinbera. Fjallað er um neyslumarkaði og framleiðslu, skipulag og uppbyggingu markaða, velferðaráhrif markaðsskipulags, markaðsbreytinga og inngripa hins opinbera. Auk fræðilegrar undirstöðu greiningar, er leitast við að fjalla um og leggja hagnýt verkefni fyrir nemendur.

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hvað segja nemendur?

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs
MS í fjármálahagfræði

Að loknu grunnnámi í verkfræði stóð valið á milli þess að halda áfram á sömu braut eða breyta um stefnu. Í ljósi þess að ég hafði áhuga á efnahagsmálum en skorti tengingu við fræðin varð hagfræðin fyrir valinu. Námið í hagfræði var bæði krefjandi og hagnýtt. Ég tel að námið hafi veitt mér góðan grunn fyrir þau verkefni sem ég er að takast á við og geri ráð fyrir að takast á við í framtíðinni.

Hafðu samband

Nemenda- og kennsluþjónusta Félagsvísindasviðs er á
Þjónustutorgi í Gimli
s. 525 4500 
Netfang: nemFVS@hi.is

Opið virka daga frá 09:00 - 15:00 
Gimli - Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík

Bóka viðtal við nemenda- og kennsluþjónustu Félagsvísindasviðs

Hagfræðideild á samfélagsmiðlum

 Facebook

Gimli, Háskóli Íslands

Hjálplegt efni 

Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.