Pavla Dagsson Waldhauserová, doktorsnemi við Raunvísindadeild
„Íslendingar anda að sér menguðu lofti frá útlöndum en líka menguðu lofti sem er upprunnið hér á landi,“ segir Pavla Dagsson Waldhauserová, doktorsnemi í lofteðlisfræði, en hún hlaut styrk úr Háskólasjóði Eimskipafélags Íslands vegna doktorsverkefnis síns í haust. „Mengað loft berst stundum til landsins frá Ameríku og iðnhéruðum Evrópu. Loftmengun sem upprunnin er á Íslandi er frá söndunum, jökulárfarvegum og eldgosum.“
Pavla er í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands, Landgræðslu ríkisins og Veðurstofu Íslands. „Veðurstofan á gríðarlega mikið af upplýsingum um staðbundið veðurfar, sandrok og moldrok, sem ná aftur til fyrri hluta 20. aldar. Þaðan fékk ég líka einstakar mæliniðurstöður um ósónlagið í heiðhvolfinu frá 1957. Eldfjöll eins og Hekla (2000), Grímsvötn (2004 og 2011) og Eyjafjallajökull (2010) framleiða mikið af gosösku sem berst upp í heiðhvolfið og hefur neikvæð áhrif á ósónlagið,“ útskýrir Pavla.
Pavla Dagsson Waldhauserová
„Íslendingar anda að sér menguðu lofti frá útlöndum en líka menguðu lofti sem er upprunnið hér á landi.“

„Loftmengun á suðvesturhluta landsins var sérstaklega sýnileg í september síðastliðnum. Vindur feykti jarðvegi og gosösku frá hálendinu og suðurströndinni upp í loft,“ segir Pavla. „Þaðan barst mengunin til Reykjavíkur þar sem hún mældist tífalt meiri en viðmiðunarmörk gera ráð fyrir en það þýðir að loftmengunin var beinlínis hættuleg fólki.“
Að sögn Pövlu er hugsanlegt að Ísland verði í náinni framtíð þátttakandi í samvinnuverkefni 17 landa um loftmengun. Tilgangur samvinnuverkefnisins er að fylgjast með loftmengun sem berst langa leið, m.a. yfir landamæri. „Ég vinn að líkani um loftmengun sem hefur forspárgildi fyrir dreifingu hennar. Almenningur fær aðgang að þessu líkani á vefsíðu sem sýnir dreifingu hennar í rauntíma. Þetta þýðir að fólk fær upplýsingar sem það hafði ekki áður um loftmengun og getur í framhaldi af því tekið ákvarðanir sem hafa bein
áhrif á heilsu þess,“ segir Pavla.
Leiðbeinandi: Haraldur Ólafsson, prófessor við Raunvísindadeild.