Er þetta ekki bara frekja? Samspil kvíða og hegðunarvanda barna
![Er þetta ekki bara frekja? Samspil kvíða og hegðunarvanda barna - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir/KRI_baltnord_170321_041xx.jpg?itok=WJ_3o8bo)
Aðalbygging
Hátíðarsalur
Urður Njarðvík, dósent við Sálfræðideild heldur erindi um samspil kvíða og hegðunarvanda barna
Opið hús og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir
Undanfarið hefur mikið verið rætt um kvíða meðal barna og unglinga á Íslandi og virðast skimanir benda til þess að tíðni hans sé að aukast. Í erindinu verður fjallað um birtingarmynd kvíða meðal barna og unglinga og hvernig foreldrar geta tekist á við þennan vanda heima fyrir. Einnig verður rætt um tengsl kvíða við hegðunarvanda, hvernig einkenni kvíða eru oft mistúlkuð sem mótþrói og frekja og hvers vegna börn með ADHD eru í sérstakri áhættu til að þróa með sér kvíðaraskanir.
Fyrirlestur Urðar er sá fyrsti í nýrri fyrirlestraröð sem Háskóli Íslands hleypir af stokkunum á árinu 2018 og ber heitið Háskólinn og samfélagið. Viðfangsefni fyrirlestraraðarinnar verða af ýmsum toga en eiga það sameiginlegt að hafa verið áberandi í samfélagsumræðunni síðustu misseri. Í fyrstu fræðslufundaröðinni verður velferð barna og ungmenna í brennidepli.
Urður Njarðvík, dósent við Sálfræðideild fjallar um birtingarmynd kvíða meðal barna og unglinga og hvernig foreldrar geta tekist á við þennan vanda heima fyrir. Urður ræðir einnig um tengsl kvíða við hegðunarvanda, hvernig einkenni kvíða eru oft mistúlkuð sem mótþrói og frekja og hvers vegna börn með ADHD eru í sérstakri áhættu til að þróa með sér kvíðaraskanir.
![Er þetta ekki bara frekja? Samspil kvíða og hegðunarvanda barna](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/jzggb.jpg?itok=YMak0U7g)