Doktorsvörn í þýðingafræði: Tinna Þórdís Gunnlaugsdóttir

Aðalbygging
Hátíðasalur
Mánudaginn 31. ágúst fer fram doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Þá ver Tinna Þórdís Gunnlaugsdóttir doktorsritgerð sína í þýðingafræði, Lifandi texti, Áhrif þýðinga á sögu leiklistariðkunar á Íslandi. Viðburðurinn fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00.
Andmælendur við vörnina eru Ástráður Eysteinsson, prófessor í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands og Guðrún Kristinsdóttir, nýdoktor og stundakennari í frönskum bókmenntum og menningu. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Gauta Kristmannssonar, prófessor í þýðingarfræði við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktornefnd Brynja Þorgeirsdóttir, dósent í íslensku sem öðrum máli við Háskóla Íslands og Magnús Þór Þorbergsson, leiklistarráðunautur og doktor í almennri bókamenntafræði.
Ásgrímur Angantýsson, forseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnar athöfninni.
Um rannsóknina
Í ritgerðinni eru áhrif þýðinga á sögu leiklistariðkunnar á Íslandi til rannsóknar. Þýðingar erlendra leikrita eru í kjarna rannsóknarinnar en einnig margvísleg túlkun, hagræðing og endurritun texta fyrir leiksvið. Leitast er við að varpa ljósi á mikilvægi þeirrar menningarmiðlunar á sér stað með þýðingum og því nýskapandi afli sem þær bera með sér. Einnig er leitast við að varpa ljósi á þýðingarhugtakið með vísan til fræðigreinarinnar og sérstöku tilliti til leikbókmennta og sviðshandrita, eða texta sem ætlaður er til lifandi flutnings á leiksviði. Rannsóknin sýnir að þýðingar í sínum margbreytilegu og margvíslegum myndum hafi ekki aðeins grundvallað leiklistarstarf á Íslandi í þeirri mynd sem við þekkjum það, heldur einnig stuðlað að áframhaldandi vexti þess og viðgangi allt til þessa dags.
Um doktorsefnið
Tinna Gunnlaugsdóttir er með BA próf í leiklist frá Listaháskóla Íslands, (áður Leiklistarskóli Íslands) MBA próf frá Háskólanum í Reykjavík og BA í sænsku og MA í þýðingafræði frá Háskóla Íslands. Hún starfaði lengst af sem leikari á sviði og í kvikmyndum, auk þess að gegna embætti þjóðleikhússtjóra í tíu ár.
Tinna Þórdís Gunnlaugsdóttir.
