Dagur stjórnmálafræðinnar - "Hart til hægri"

Oddi
101
Félag stjórnmálafræðinga stendur fyrir árlegum degi stjórnmálafræðinnar miðvikudaginn 3. júní, í Odda stofu 101, í samstarfi við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála. Þemað í ár er „Hart til hægri: Frá jaðri til áhrifa í stjórnmálum Vesturlanda“ og verður hægri sveiflan á Vesturlöndum skoðuð frá ýmsum sjónarhornum.
Dagskránni lýkur, að vanda, með afhendingu verðlauna fyrir bestu lokaritgerðir í stjórnmálafræði á árinu 2025 og móttöku fyrir viðstadda.
Dagskrá:
Hart til hægri: Frá jaðri til áhrifa í stjórnmálum Vesturlanda
14:00 – 14:45: Stóra samhengið og staðan í dag
Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann prófessorar og þáttastjórnendur Skuggavaldsins
14:45 – 15:45: Unga fólkið, óhefðbundnir fjölmiðlar og rísandi hægri vængur stjórnmálanna
Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Netvís
Dagbjört Rós Jónsdóttir Strandberg, fagráðgjafi, Center for Digital Pædagogik
Silja Jensdóttir, nemi við Menntaskólann við Sund
Sigurður Óli Karlsson, nemi við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
15:45 – 16:00 Hlé
16:00 – 16:30: Háskólar, málfrelsi og upplýst umræða
Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands og Svanhildur Þorvaldsdóttir dósent við Stjórnmálafræðideild HÍ
16:30 – 17:00 Viðurkenning fyrir bestu lokaritgerðir í stjórnmálafræði árið 2025
G. Rósa Eyvindardóttir, formaður dómnefnda fyrir ritgerðaverðlaun
17:00 Móttaka á kaffistofunni í Odda fyrir alla viðstadda
Fundarstjóri verður Svanhildur Þorvaldsdóttir, formaður Félags stjórnmálafræðinga og dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands
Öll velkomin.
Viðburðurinn fer fram á íslensku.
Aðgangur ókeypis.