Bandarískar íþróttir: Skipulag og áhrif
Oddi
101
Fyrirlesari: Gunnar Valgeirsson, dósent við California State University í Los Angeles.
Gunnar Valgeirsson hefur búið í Bandaríkjunum í þrjá áratugi og kennt félagsfræði íþrótta í tveimur bandarískum háskólum frá árinu 1991.
Í fyrirlestrinum mun Gunnar kynna stuttlega sögu og útbreiðslu keppnisíþrótta og ræða uppbyggingu barna-, gagnfræðaskóla-, og háskólaíþrótta. Um leið verður rýnt í hvernig íþróttaþátttakan hefur áhrif á líf einstaklinga samanborið við þá sem ekki taka þátt í keppnisíþróttum, t.d. hvað varðar félagslega lagskiptingu.
Skipulag og efnahagsgrundvöllur atvinnuíþrótta verður ræddur, svo og ahrif stjórnmála og fjölmiðla á þær.
Loks mun verða rýnt í áhrif núverandi þjóðfélagsbreytinga, s.s. heimsvæðingar, á keppnisíþróttir í Bandaríkjunum.
Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröðinni Samtal við samfélagið sem er á vegum námsbrautar í félagsfræði og Félagsfræðingafélags Íslands.
Allir velkomnir.
Gunnar Valgeirsson