Skip to main content
6. ágúst 2026

Kallað eftir hrossum til gangsetningar á haustönn 2026

Hestakona að klappa hesti

Hestafræðideild Háskóla Íslands á Hólum leitar nú að hrossum til þátttöku í námskeiðinu Þjálfun IV á haustönn 2026. Verkefnið er hluti af námi þriðja árs nemenda við deildina og byggir á áralöngu og farsælu samstarfi skólans við hrossaræktendur um allt land.

Um árabil hefur HÍ á Hólum (áður Háskólinn á Hólum) átt í góðu samstarfi við hrossaræktendur um að senda skólanum hross til tamningar og þjálfunar. Nú er leitað eftir hrossum sem eru tilbúin til gangsetningar og framhaldsþjálfunar á tímabilinu 24. ágúst til 24. október 2026 (með fyrirvara um ófyrirséðar breytingar). Tekið verður á móti hrossunum 24. ágúst á milli kl. 13:00 og 15:00.

Það eru þriðja árs nemar við Hestafræðideild sem vinna með hrossin undir handleiðslu reiðkennara skólans.

Þjálfun byggð á faglegum grunni

Í námskeiðinu Þjálfun IV er lögð áhersla á markvissa framhaldsþjálfun unghrossa sem lokið hafa frumtamningastigi. Nemendur vinna út frá einstaklingsmiðaðri þjálfunaráætlun þar sem tekið er mið af meðal annars ganglagi, geðslagi, líkamlegum styrk og þjálfunarstigi hvers hests.

Áhersla er lögð á hestvænar þjálfunaraðferðir, markviss vinnubrögð og uppbyggingu hestsins með það að markmiði að bæta samspil ábendinga, taumsamband, líkamsbeitingu, jafnvægi og gangtegundir. Jafnframt fá nemendur þjálfun í að meta framfarir hrossanna og kynna vinnu sína.

Forkröfur

Verkefnið hentar hrossum sem hafa lokið frumtamningu eða eru meira tamin. Hross þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Vera fædd árið 2022 eða fyrr.

  • Hafa lokið frumtamningu samkvæmt viðmiðum HÍ á Hólum (áður Háskólans á Hólum, að lágmarki um þriggja mánaða tamning) eða vera meira tamin.

  • Vera í góðu fóðurástandi (holdastig 3–3,5), á járnum og í þjálfun.

  • Ekki er tekið við hrekkjóttum eða hættulegum hrossum.

Ef hesturinn hefur ekki verið frumtaminn við Hestafræðideild HÍ á Hólum þarf að fylgja umsókn stutt myndband af hestinum í reið (YouTube- eða Vimeo-hlekkur).

Kostnaður

Þátttökugjald fyrir eitt hross á tímabilinu er 139.000 kr. Gjaldinu fylgir ekki virðisaukaskattur.

Innifalið í gjaldinu er:

  • uppihald hestsins á meðan á námskeiðinu stendur,

  • ein járning (ef þörf krefur),

  • skoðun dýralæknis á tönnum og munni.

Ef kalla þarf til dýralæknis vegna slyss eða veikinda greiðir eigandi þann kostnað.

Umsóknir

Aðeins verða sjö hross valin til þátttöku og áskilur Háskóli Íslands á Hólum sér rétt til að velja þau hross sem best henta verkefninu.

Í umsókn skulu koma fram:

  • IS-númer hestsins,

  • hversu lengi hesturinn hefur verið taminn,

  • myndband af hestinum í reið (YouTube- eða Vimeo-hlekkur), ef hann hefur ekki verið frumtaminn við Hestafræðideild Háskólans á Hólum.

Áhugasamir hrossaeigendur eru hvattir til að senda umsókn sem fyrst hér - Umsókn

Ef það eru einhverjar spurningar er hægt að senda á mette@hi.is

Tveir hestar og knapar í reiðtúr á stíg í Hjaltadal á lulli. Séð að aftan.