Kristniboðskóngarnir og skáldin þeirra - um ríkulegan skáldskap Bergsbókar

Edda
Guðrún Nordal flytur fyrirlestur í Eddu laugardaginn 15. ágúst kl. 13 í tengslum við sýninguna Heimur í orðum.
Í erindinu verður fjallað um Bergsbók sem er eitt þeirra glæsilegu handrita sem fengin hafa verið að láni úr Konungsbókhlöðu í Stokkhólmi á sýninguna Heimur í orðum.
Handritið var skrifað á Íslandi um 1400, en flutt til Noregs á sextándu öld, fór þaðan til Danmerkur og loks til Svíþjóðar.
Það er feikistórt, meira en 200 blöð, og geymir sögurnar miklu um Ólaf Tryggvason og Ólaf helga, sem hafa þegar hér er komið sögu vaxið mjög og innlimað margskonar efni um konungana, eins og Íslendingasögurnar Hallfreðar sögu og Fóstbræðra sögu.
Milli sagnanna tveggja eru skrifuð stórkostleg stök kvæði um konungana tvo, þar á meðal Geisli Einars Skúlasonar og sjálf Lilja í elstu varðveittu gerð. Í Bergsbók eru ritaðar meira en 650 vísur og verður í erindinu hugað að þessu margbreytilega og merkilega efni og skáldunum sjálfum. Handritið er nefnt eftir Bergi Sokkasyni ábóta á Munkaþverá sem í handritinu er sagður hafa ritað Ólafs sögu Tryggvasonar.
Öll velkomin.
Í erindinu verður fjallað um Bergsbók sem er eitt þeirra glæsilegu handrita sem fengin hafa verið að láni úr Konungsbókhlöðu í Stokkhólmi á sýninguna Heimur í orðum.
