Skip to main content
11. júní 2026

Háskóli Íslands brautskráir yfir 2600 kandídata á laugardag

Háskóli Íslands brautskráir yfir 2600 kandídata á laugardag - á vefsíðu Háskóla Íslands

Ríflega 2600 kandídatar brautskrást úr grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands laugardaginn 13. júní og líkt og undanfarin ár verða tvær brautskráningarathafnir í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Báðar athafnir verða í beinu streymi.

Fyrri brautskráningarathöfnin hefst kl. 10 en þar taka kandídatar í grunn- og framhaldsnámi frá Félagsvísindasviði, Heilbrigðisvísindasviði og Hugvísindasviði við prófskírteinum sínum. Samtals brautskrást 738 frá Félagsvísindasviði, 566 frá Heilbrigðisvísindasviði og 401 frá Hugvísindasviði.

Bein útsending frá fyrri brautskráningarathöfn (útsending hefst hálftíma fyrir athöfn)
 

Seinni athöfnin hefst kl. 13.30 og hana sækja kandídatar í grunn- og framhaldsnámi frá Menntavísindasviði og Verkfræði- og náttúruvísindasviði. Alls brautskrást 654 frá Menntavísindasviði og 280 frá Verkfræði- og náttúruvísindasviði. 

Bein útsending frá seinni brautskráningarathöfn (útsending hefst hálftíma fyrir athöfn)

Samanlagt brautskrást því 2.639 kandídatar frá Háskóla Íslands. 

Þetta er fyrsta vorbrautskráning Silju Báru R. Ómarsdóttur í embætti rektors og hún mun flytja ávarp við báðar athafnirnar. Auk ávarpa þau Judith Lucia Bischof, MS í hagnýtri sálfræði, og Myrkvi M. W. Stefánsson, BS í efnaverkfræði, gesti fyrir hönd brautskráningarkandídata á athöfnunum tveimur. 

Háskóli Íslands brautskráði 445 kandídata í febrúar síðastliðnum og því hafa alls 3084 útskrifast frá skólanum það sem af er ári.
Kandídatar hafa fengið sent bréf með nánari upplýsingum um fyrirkomulag athafnanna en starfsfólk Háskólans verður enn fremur á staðnum og leiðbeinir kandídötum um sætaskipan.

Kandídatar á brautskráningu