HÍ og Þjóðskjalasafnið efla samstarf um nám í skjalfræði

Þjóðskjalasafn Íslands og Háskóli Íslands hafa endurnýjað samstarfssamning um nám í hagnýtri skjalfræði. Um leið er ætlunin að efla samstarf á sviði kennslu og rannsókna milli námsbrautar í sagnfræði við Háskóla Íslands og Þjóðskjalasafnsins. Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður og Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, undirrituðu samstarfssamninginn í gær, 2. júní.
Þjóðskjalasafnið og námsbraut í sagnfræði hafa átt samstarf um kennslu í skjalfræði í meira en fjóra áratugi. Fyrirkomulag námsins hefur verið með ýmsum hætti í gegnum árin en frá árinu 2020 hefur verið boðið upp á 30 eininga nám á meistarastigi í fjarnámi, fyrst sem viðbótardiplómu en síðar sem örnám. Frá og með komandi hausti verður örnámið 40 einingar og verður hluti þess starfsnám en þar gefst nemendum kostur á að kynnast nánar verkefnum í skjalavörslu og skjalastjórn á opinberum skjalasöfnum.
Nám í hagnýtri skjalfræði heyrir undir Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði. Námið er ætlað þeim sem hafa áhuga á að vinna með skjalasöfn eða rannsaka þau og þeim sem starfa við skjalavörslu og skjalastjórn úti í stofnunum og fyrirtækjum. Lagt er upp með að tengja námið við raunhæf verkefni og styrkja fólk í starfi og hafa aðstandendur námsins átt í góðu samstarfi við héraðsskjalasöfn um land allt um verkefni fyrir nemendur. Yfir 50 nemendur með bakgrunn úr fjölbreyttum háskólagreinum hafa lokið náminu frá árinu 2020.
Umsjón með námsleiðinni er í höndum lektors í skjalfræði sem er í 80% starfi við Háskóla Íslands og 20% starfi hjá Þjóðskjalasafninu. Hlutverk lektorsins er meðal annars að sinna kennslu og leiðbeina nemendum í einstaklingsverkefnum og rannsóknartengdu framhaldsnámi. Allmargir stundakennarar úr hópi starfsfólks Þjóðskjalasafns hafa einnig komið að kennslunni í gegnum árin og munu áfram gera það samkvæmt nýja samningnum.
Samningurinn gerir einnig ráð fyrir að tengja sagnfræðikennslu við Háskóla Íslands nánar við starfsemi Þjóðskjalasafns Íslands til að greiða fyrir gagnkvæmum fræðilegum samskiptum um varðveislu, miðlun og útgáfu heimilda og gagna til sögu Íslands. Ætlunin er að skilgreina verkefni þar sem til grundvallar liggja heimildir í Þjóðskjalasafni, sérfræðiþekking starfsmanna safnsins, nemenda og kennara HÍ.
Enn er hægt að sækja um örnám í hagnýtri skjalfræði fyrir næsta skólaár en umsóknarfrestur er til 5. júní.
