Skip to main content

Samfélagsmiðla- og snjallsímanotkun barna og ungmenna - EFST Á BAUGI

Eru börn og ungmenni örugg á netinu?Snjallsímanotkun og netmiðlar – EFST Á BAUGI. - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
10. febrúar 2026 15:00 til 16:30
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Málþingið, Samfélagsmiðla- og snjallsímanotkun barna og ungmenna fer fram þriðjudaginn 10. febrúar í Hátíðarsal Háskóla Íslands, kl. 15:00–16:30.

Málþingið eru hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs HÍ, Efst á baugi og unnin í samstarfi við Netvís – Fjölmiðlanefnd í tilefni af Netöryggisdeginum 10. febrúar. 

Kynntar verða nýjustu niðurstöður úr landskönnuninni Börn og netmiðlar meðal 9 - 18 ára grunn- og framhaldsskólanema (fyrirlögn haustið 2025). Fjallað verður um samfélagsmiðlanotkun ungmenna, áreiti og netöryggi, og notkun og viðhorf til gervigreindar. Að lokum fara fram innlegg frá ungmennum og pallborðsumræður. 

Dagskrá:

Fundarstjóri: Þóra Jónsdóttir, Netvís – Fjölmiðlanefnd 

15:00 – Opnunarávarp 
Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ 

15:15 – Kynning á niðurstöðum 

Ingibjörg Kjartansdóttir, verkefnisstjóri Menntavísindasviðs og Menntavísindastofnunar HÍ og Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Netvís – Fjölmiðlanefnd. 
Kynntar verða niðurstöður um samfélagsmiðlanotkun ungmenna og viðhorf þeirra til áreitis og öryggis á netinu. Einnig verða kynntar niðurstöður um notkun ungmenna á gervigreind og sjónarmið þeirra til hennar. 

15:35 - Viðhorf kennara og nemenda til snjallsímanotkunar  
Svava Pétursdóttir, dósent við Menntavísindasvið HÍ kynnir niðurstöður úr rannsókn um snjallsímanotkun og reglur í skólum, byggða á viðtölum við kennara og nemendur í 5. og 9. bekk. 

15:45 – Innlegg ungmenna 
Ungmenni (Samfés) 

15:50–16:30 – Pallborðsumræður 
Stjórnandi: Þóra Jónsdóttir 
Umræður um samfélagsmiðlanotkun, netöryggi og ábyrgð fullorðinna í umhverfi þar sem stafrænt líf ungmenna er sífellt stærri hluti af daglegu lífi.  

Þátttakendur pallborðs: 

  • Skúli Bragi Geirdal 
  • Svava Pétursdóttir 
  • Tveir fulltrúar ungmenna 

Málþingið verður í beinu streymi.

Verið öll velkomin!

Málþingið, Samfélagsmiðla- og snjallsímanotkun barna og ungmenna fer fram þriðjudaginn 10. febrúar í Hátíðarsal Háskóla Íslands, kl. 15:00–16:30.
Málþingið verður einnig í beinu streymi.
Verið öll velkomin!

Samfélagsmiðla- og snjallsímanotkun barna og ungmenna - EFST Á BAUGI