Skip to main content

Kvöldstund með smávinum: Gömul form í nýjum búningi

Kvöldstund með smávinum: Gömul form í nýjum búningi - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
21. janúar 2026 20:00 til 21:30
Hvar 

Gunnarshús

Nánar 
Aðgangur ókeypis

STUTT-rannsóknastofa í smásögum og styttri textum heldur áfram með kvöldstundir með smávinum í Gunnarshúsi. Höfundar og þýðendur fjalla um verk sín og/eða þýðingar og lesa valda texta. Megin markmið þessara stunda er að skapa tækifæri til að kynnast ólíkum stuttum bókmenntatextum, gömlum og nýjum, og verða fróðari um þá, hvort sem þeir kallast örsögur, smáprósar, prósaljóð eða annað. Einnig að njóta samveru við upplestur og umfjöllun verkanna. Kvöldin eru skipulögð út frá þemum.

Gestir fá tækifæri til að bera fram spurningar og bregðast við upplestri og umfjöllun. Boðið verður upp á kaffi og kleinur. Verið hjartanlega velkomin!

Umsjón hafa Kristín Guðrún Jónsdóttir og Ásdís R. Magnúsdóttir

Haldið í Gunnarshús, Dyngjuvegi 8, Reykjavík, miðvikudaginn 21. janúar kl. 20:00-21:30.

Dagskrá:

Gömul form í nýjum búningi. Lesið í hið liðna

  • Sigurlín Bjarney Gísladóttir: Fjallvegir í Reykjavík 
  • Gunnar Harðarson: Staðháttatal. Örnefnalýsingar
  • Magnús  Sigurðsson: Glerþræðirnir, Húslestur, Lexíurnar 
  • Kristín Guðrún Jónsdóttir: Svarti sauðurinn og aðrar fabúlur eftir Augusto Monterroso

Dagskrá kvöldstundar fimmtudaginn 19. febrúar 2026:

Að skrifa stutt

  • Þórarinn Eldjárn: Dreymt bert
  • Sigurbjörg Þrastardóttir: Mæður geimfara
  • Birta Þórhallsdóttir: Einsamræður
  • Gyrðir Elíasson: Smáprósar, Langbylgja

Kvöldstund með smávinum.

Kvöldstund með smávinum: Gömul form í nýjum búningi