Fyrirlestraröð haust 2025 Fyrirlestrar fara fram á íslensku Vinnuferli háskólanema: Þriðjudaginn 27. janúar, kl. 11:00 - 11:45 á Teams - Opnað verður fyrir skráningu 13. janúar Í þessum fyrirlestri verður farið yfir atriði sem styrkja nemendur í að tileinka sér skilvirk vinnubrögð, færni og þekkingu sem stuðla að ánægju og velgengni í námi við HÍ. Háskólanám byggir á skipulagi, aga og þrautseigju en líka á gleði, vellíðan og góðum tengslum. Það er gott veganesti að kynna sér í upphafi háskólanáms gagnleg atriði, skoða eigin vinnubrögð og vega og meta hvort hægt sé að gera gott betur. Þunglyndi Þriðjudaginn 27. janúar, kl. 13:00 - 13:45 á staðnum - Opnað verður fyrir skráningu 13. janúar Í örfyrirlestri um þunglyndi verður fjallað um birtingarmyndir og vítahringi þunglyndis. Sérstök áhersla er lögð á að auka skilning á hvernig þunglyndi þróast og hvernig megi rjúfa vítahringi og efla bjargráð. Tímastjórnun og skipulag: Miðvikudaginn 4. febrúar, kl. 11:00 - 11:45 á Teams - Opnað verður fyrir skráningu 21. janúar Í þessum fyrirlestri verður farið yfir mikilvægi þess að hafa gott skipulag og tímastjórnun. Skipulag og góð tímastjórnun eru lykilþáttur að velgengni í háskólanámi. Farið verður yfir gerð tímaáætlana, áhrif tímaþjófa, ávinning af tímastjórnun og gefin gagnleg ráð varðandi skipulag. Vinnuferli háskólanema: Fimmtudaginn 5. febrúar, kl. 14:00 - 14:45 á Teams - Opnað verður fyrir skráningu 22. janúar Í þessum fyrirlestri verður farið yfir atriði sem styrkja nemendur í að tileinka sér skilvirk vinnubrögð, færni og þekkingu sem stuðla að ánægju og velgengni í námi við HÍ. Háskólanám byggir á skipulagi, aga og þrautseigju en líka á gleði, vellíðan og góðum tengslum. Það er gott veganesti að kynna sér í upphafi háskólanáms gagnleg atriði, skoða eigin vinnubrögð og vega og meta hvort hægt sé að gera gott betur. Lestur og glósur: Mánudaginn 9. febrúar, kl. 14:00 - 14:45 á Teams - Opnað verður fyrir skráningu 26. janúar Í þessum fyrirlestri verður fjallað um lestur námsefnis, mikilvægi upprifjunar og leiðir til að lesa og skilja texta. Einnig verður farið yfir ýmiskonar glósuaðferðir. Streita og álag: Fimmtudaginn 26. febrúar, kl. 13:00 - 13:45 á staðnum - Opnað verður fyrir skráningu 12. febrúar Í þessum fyrirlestri verður fjallað um einkenni óhóflegrar streitu og helstu áhrifaþætti. Farið verður yfir hvernig viðbrögð okkar og hugsanamynstur hafa einnig áhrif á streitu og kennd hjálpleg bjargráð. Frestun: Miðvikudaginn 4. mars, kl. 14:00 - 14:45 á Teams - Opnað verður fyrir skráningu 18. febrúar Farið verður yfir helstu atriði er tengjast frestun. Frestun (e. procrastination) er tilhneiging til að fresta því sem nauðsynlegt er að gera til að ná einhverju markmiði þ.e. að vinna ekki þau verkefni sem liggja fyrir. Frestun eða tilhneiging til hennar hefur mikil áhrif á nám háskólanema. Farið verður stuttlega yfir helstu ástæður frestunar og hagnýt ráð hvernig hægt er að vinna má gegn frestun. Prófundirbúningur og próftaka: Fimmtudaginn 26. mars, kl. 13:30 - 14:15 á Teams - Opnað verður fyrir skráningu 12. mars Þessi fyrirlestur fjallar um atriði sem styrkja nemendur í því að takast á við próf og prófatímabil á heilbrigðan hátt. Farið er yfir þætti sem snúa að persónulegum undirbúningi nemenda, atriði sem varða próftökuna sjálfa og hvað sé gott að hafa í huga varðandi mismunandi prófform og fjölbreytta próftöku. Að hefja skrif á lokaverkefni í grunnnámi BA, BS, B.ed. Að hefja skrif á lokaverkefni Við bjóðum upp á fyrirlestra um hagnýt vinnubrögð við skrif á lokaverkefni í grunnnámi. Farið er yfir gagnleg atriði svo sem samskipti við leiðbeinanda, skipulag og gefnar ábendingar um vinnuferlið. Staðnámskeið Þriðjudaginn 20. janúar, kl. 10:00 - 12:00 - Opnað verður fyrir skráningu 6. janúar - Hámarksfjöldi 15 Miðvikudaginn 28. janúar, kl. 13:00 - 15:00 - Opnað verður fyrir skráningu 14. janúar - Hámarksfjöldi 15 Fjarnámskeið (Teams) Þriðjudaginn 3. febrúar, kl. 13:00 - 15:00 - Opnað verður fyrir skráningu 20. janúar. Fyrirlestrar fara fram á íslensku facebooklinkedintwitter