Rannsakar vinnubrögð tónskálda og flugumferðarstjóra

Elena Callegari, nýdoktor við Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista, vinnur nú að rannsókn á því hvernig fólk tekst á við flókin kerfi. Í rannsókninni eru þrjú ólík svið borin saman: flugumferðarstjórn, tónsmíðar og dagleg málnotkun. Markmiðið er að kanna hvernig fólk heldur utan um marga breytilega þætti sem hafa áhrif hver á annan, forgangsraðar upplýsingum og kemur í veg fyrir að flóknar aðstæður verði óviðráðanlegar. Að sögn Elenu er meginspurning rannsóknarinnar sú hvernig fólk hafi stjórn á aðstæðum þar sem unnið er með marga breytilega þætti sem haga sér á ólínulegan hátt og þar sem ákvarðanir þurfi að taka hratt á sama tíma og hver ákvörðun geti skapað nýjar og ófyrirséðar áskoranir eða vandamál.
Í fyrsta hluta rannsóknarinnar hefur Elena kynnt sér störf flugumferðarstjóra í flugstjórnarmiðstöð AVIANS á Reykjavíkurflugvelli. „Ég hef fylgst náið með flugumferðarstjórum að störfum og við æfingar til að átta mig á því hvernig þeir vinna við flóknar aðstæður, hvernig þeir fylgjast með mörgum flugvélum í einu, forgangsraða upplýsingum, greina möguleg vandamál áður en þau verða alvarleg og finna einfaldar lausnir á flóknum aðstæðum án þess að missa yfirsýn.“ Elena segir flugumferðarstjórn sérstaklega spennandi rannsóknarvettvang þar sem svo mikið sé í húfi og starfið sé mjög vitsmunalega krefjandi.
Í september hefst annar hluti rannsóknarinnar með viðtölum við tónskáld um hvernig þau nálgast tónsmíðaferlið og vinna með mörg hljóðfæri, ólíkar tónlínur, takmarkanir og byggingu verksins í heild. Í þriðja hluta rannsóknarinnar verður skoðað hvernig fólk mótar setningar í daglegu tali, til dæmis hvernig það velur orð, raðar þeim í málfræðilega setningu, ákveður hvað eigi að koma fyrst eða fá áherslu og breytir því öllu í reiprennandi tal á örskömmum tíma.
Elena segir að niðurstöður rannsóknarinnar geti haft gildi langt út fyrir fræðilegt samhengi. Betri skilningur á því hvernig fólk heldur utan um flókin kerfi geti nýst við þróun þjálfunar, vinnulags, álagsmats og stuðningskerfa í störfum þar sem mikilvægt er að fylgjast með mörgum breytilegum þáttum samtímis, til dæmis í flugumferðarstjórn, neyðarviðbrögðum, samgöngum og orkukerfum. Rannsóknin nýtur styrks frá Rannís.
Elena Callegari er með doktorspróf í málvísindum frá Oslóarháskóla sem hún lauk árið 2018. Hún hefur einnig lokið meistaraprófi í málvísindum frá Utrecht-háskóla og grunnnámi í tungumálafræðum frá Ca' Foscari háskólanum í Feneyjum. Elena hefur starfað sem rannsóknarlektor við Háskóla Íslands og sérhæft sig í tungumálum og tækni. Hún býr að fjölbreyttri reynslu í rannsóknum, ráðgjöf og kennslu hjá virtum stofnunum eins og Oslóarháskóla og Meridian Linguistics. Hún stofnaði sprotafyrirtæki sem er brautryðjandi í þróun á textagerðarkerfum og textabætandi lausnum fyrir fræðileg skrif. Hún starfar einnig sem verkefnastjóri Miðstöðvar stafrænna hugvísinda og lista.
