Skip to main content
12. febrúar 2026

Hrefna Dögg hlýtur Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs 2026

Hrefna Dögg hlýtur Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs 2026 - á vefsíðu Háskóla Íslands

Hrefna Dögg Gunnarsdóttir, lektor við Lagadeild Háskóla Íslands, hlaut í dag Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs, en þau eru veitt  vísindafólki sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi er treysti stoðir mannlífs á Íslandi. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, afhenti Hrefnu verðlaunin á Rannsóknaþingi Rannís sem fór fram á Hótel Reykjavík Natura. 

Hrefna Dögg er lektor við Lagadeild Háskóla Íslands og rannsóknir hennar eru einkum á sviði heilbrigðisréttar og lögbundinna krafna til vísinda, m.a. í umhverfiserfðafræði. Hrefna er fædd árið 1984. Hún lauk BA-námi i í lögfræði árið 2011 og meistaragráðu 2012 frá Háskóla Íslands. Auk þess lauk hún meistaragráðu í hamfarastjórnun frá Kaupmannahafnarháskóla árið 2018. Hrefna hóf svo doktorsnám við Kaupmannahafnarháskóla og varði doktorsritgerð sína 2023. Þar fjallaði hún um lögbundnar kröfur til gagnsæis við notkun heilbrigðisgagna í vísindaskyni.

Hefur unnið brautryðjendastarf á sínu fræðasviði

Áður en Hrefna Dögg hóf doktorsnám sitt aflaði hún sér hagnýtrar reynslu í starfi sínu sem lögmaður hjá lögmannstofunni Rétti – Aðalsteinsson & Partners. Að loknu doktorsnámi starfaði hún sem nýdoktor við Kaupmannahafnarháskóla og árið 2024 var hún ráðin í stöðu lektors við Lagadeild Háskóla Íslands. Samhliða starfi sínu við HÍ hefur hún starfað sem rannsakandi við WELMA – Centre for Legal Studies in Welfare and Market við Lagadeild Kaupmannahafnarháskóla. Einnig hefur hún verið gestarannsakandi við Harvard Law School í Bandaríkjunum og Lagadeild Uppsalaháskóla í Svíþjóð.

Hrefna Dögg hefur unnið að rannsóknum á sviði lögfræði tengdri heilbrigðisrétti, vinnslu heilbrigðisgagna og annarra stórra gagnasafna sem notuð eru í vísindaskyni, persónuvernd, líftækni og gagnkvæmni í vísindarannsóknum. Hún hefur á skömmum tíma unnið brautryðjendastarf á sínu fræðasviði og hafa rannsóknir hennar, sem hafa m.a. birst hjá virtum alþjóðlegum útgefendum, haft áhrif á alþjóðlega umræðu um lögfræðileg, siðferðileg og samfélagsleg viðmið í tengslum við nýjar rannsóknaraðferðir á sviði líf- og erfðavísinda.

Það er mat dómnefndar að dr. Hrefna Dögg Gunnarsdóttir sé framúrskarandi ungur vísindamaður sem sýnt hafi fram á sjálfstæði, frumleika og áræðni í rannsóknum og hafi unnið brautryðjendastarf á sínu fræðasviði. Hún hafi skapað væntingar um framlag í vísindastarfi sem treystir stoðir mannlífs á Íslandi og hafi miðlað sérþekkingu sinni, jafnt innanlands sem erlendis.

Hlaut risastyrk fyrir alþjóðlegt rannsóknarverkefni 

Verk Hrefnu Daggar hafa vakið mikla athygli í vísindasamfélaginu eins og er bersýnilegt með þeirri viðurkenningu sem hún hlaut þegar hún fékk þriggja milljón dollara styrk frá Wellcome Trust rannsóknarsjóðnum. Styrkinn hlaut hún fyrir rannsóknarverkefnið „Fostering Reciprocity in Environmental DNA science through Yielded stewardship, Just benefit and Accountability“ eða FREYJA. Hrefna Dögg er aðalrannsakandi og styrkhafi í FREYJU sem sameinar hópa á sviði lögfræði, samvinnurannsókna og samfélagsþátttöku, þekkingarmiðlunar og hæfniuppbyggingar. Rannsóknarteymi Freyju mun vinna náið með samfélögum frumbyggja á Páskaeyju og í Kanada. FREYJA fjallar um gagnkvæmni, réttlæti og ábyrgð í vísindarannsóknum á sviði forn-umhverfiserfðafræði og sameinar á nýstárlegan hátt lögfræðilega greiningu, samfélagsleg sjónarmið og hagnýta þjálfun vísindamanna.

Hrefna Dögg hefur tekið virkan þátt í alþjóðlegum fagráðum og stefnumótun á sviði erfðafræði, heilbrigðisréttar og mannréttinda. Hún hefur setið í alþjóðlegu fagráði The Genetics Discrimination Observatory, sem vinnur að forvörnum gegn erfðamismunun, og er formaður stjórnar í Nordic Per Med Law sem er norrænt samstarf um lagasetningar á sviði einstaklingsmiðaðrar heilbrigðisþjónustu. Þá er Hrefna Dögg virkur þátttakandi í Value from Nordic Health Data (VALO) sem miðar að því að koma á sameiginlegum meginreglum á Norðurlöndunum um framkvæmd reglugerðar um evrópska heilbrigðisgagnasvæðið.

Það er mat dómnefndar að dr. Hrefna Dögg Gunnarsdóttir sé framúrskarandi ungur vísindamaður sem sýnt hafi fram á sjálfstæði, frumleika og áræðni í rannsóknum og hafi unnið brautryðjendastarf á sínu fræðasviði. Hún hafi skapað væntingar um framlag í vísindastarfi sem treystir stoðir mannlífs á Íslandi og hafi miðlað sérþekkingu sinni, jafnt innanlands sem erlendis. Hrefna sé því verðugur handhafi hvatningarverðlauna Rannsóknarsjóðs árið 2026.

Um verðlaunin

Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs eru veitt vísindafólki sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi er treysti stoðir mannlífs á Íslandi. Verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 1987 en markmiðið með þeim er að hvetja vísindafólk til dáða og vekja athygli almennings á gildi rannsókna og starfi vísindafólks.

Handhafi Hvatningarverðlauna Rannsóknasjóðs 2026, Hrefna Dögg Gunnarsdóttir. og ráðherra menningar, nýsköpunar- og háskóla, Logi Einarsson. MYND/Arnaldur Halldórsson