Skip to main content
13. apríl 2015

Kosningaþátttaka í rektorskjöri kl. 13

Rafræn kosning til rektors Háskóla Íslands stendur nú yfir. Kosningin hófst  kl. 9.00  í morgun og lýkur kl. 18.00. Kl. 13.00 höfðu ríflega 25% atkvæðisbærra tekið þátt í kosningunni en nánari sundurliðum eftir þátttöku í hópum kjósenda má sjá hér að neðan.

.

Samsetning kjörskrár
Fjöldi KK KVK
14.110 4.998 9.112
Kosningaþátttaka kl. 13:00
Fjöldi á kjörskrá KK kosið KVK kosið Samtals kosið Hlutfall
Á kjörskrá 14.110
  Þar af starfsmenn með háskólapróf 1.268 407 438 845 66,64&
  Þar af starfsmenn án háskólaprófs 218 58 77 135 61,93%
  Þar af nemendur 12.624 968 1.616 2.584 20,47%
Kjörsókn samtals 3.564 25,26%

Þrír eru í kjöri, en það eru Einar Steingrímsson, prófessor við Strathclyde-háskóla í Glasgow í Skotlandi, Guðrún Nordal, prófessor og forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, og Jón Atli Benediktsson, prófessor og aðstoðarrektor vísinda og kennslu við Háskóla Íslands.

Leiðbeiningar um rafræna kosningu: Á heimasíðu háskólans www.hi.is og í Uglu er vefborði merktur: 

„Kosningar til rektors árið 2015. Smelltu hér til að greiða þitt atkvæði.“ Með því að smella á borðann er farið beint á kosningasíðu. Kjósendur verða að nota aðgangs- og lykilorð sín að Uglu til að svæðið opnist. 

Tölvuver og aðstoð við rafræna kosningu: Tölvuver 204 á Háskólatorgi er frátekið sérstaklega fyrir kjördag. Þar verður starfsmaður frá Reiknistofnun háskólans til staðar og veitir aðstoð ef tæknileg vandamál koma upp. 

Að auki er Tölvuþjónustan á Háskólatorgi opin frá kl. 8.00-16.00, sími: 525-4222.

http://rhi.hi.is/tolvuthjonusta_rhi