Móttaka alþjóðlegra nýnema á Hugvísindasviði

Hvenær
21. ágúst 2026 11:00 til 12:00
Hvar
Háskólatorg
HT103
Nánar
Aðgangur ókeypis
Hugvísindasvið býður alþjóðlegum nýnemum í grunn- og framhaldsnámi á móttöku í stofu 103 á Háskólatorgi föstudaginn 21. ágúst frá kl. 11:00 - 12:00.
Á móttökunni verða veittar hagnýtar upplýsingar um nám við Hugvísindasvið, HÍ.
Dagskrá
- Ávarp rektors HÍ
- Kynning forseta Hugvísindasviðs
- Sprettur
- Þjónusta Nemendaráðgjafar
- Kynning á Uglu
Kennsla hefst mánudaginn 24. ágúst og nýnemadagar Háskóla Íslands hefjast 31. ágúst.