Skip to main content
1. júlí 2026

Fjörutíu fá framgang í starfi

Fjörutíu fá framgang í starfi - á vefsíðu Háskóla Íslands

Fjörutíu akademískir starfsmenn af öllum fimm fræðasviðum Háskóla Íslands hafa fengið framgang í starfi að undangengnu ítarlegu faglegu mati á vegum dóm- og framgangsnefnda fræðasviða skólans. 

Árlega gefst akademísku starfsfólki færi á að sækja um framgang í starfi og er hann jafnan veittur í lok skólaárs. Mat á umsóknum er í höndum sérstakra framgangsnefnda hvers fræðasviðs sem afgreiða hvert mál til framgangs- og fastráðningarnefndar. Í framhaldinu ákveður rektor á grundvelli fyrirliggjandi dómnefndarálita og afgreiðslu framgangs- og fastráðningarnefndar hverjum veita skuli framgang.

Að þessu sinni fá 14 starfsmenn framgang í starf prófessors, 25 í starf dósents og einn í stöðu rannsóknadósents:

Eftirtaldir starfsmenn fá framgang:

Félagsvísindasvið

Heilbrigðisvísindasvið

Hugvísindasvið

Menntavísindasvið

Verkfræði- og náttúruvísindasvið

Háskólatorg