Guðrún Dröfn Whitehead
Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild
Guðrún D. Whitehead er lektor í safnafræði við Háskóla Íslands. Hún hefur kennt námskeið tengd sorpmenningu, menningararfleifð víkinga, faglegu starfi safna, safnfræðslu ásamt kenningum í safnafræði. Rannsóknir Guðrúnar eru almennt tengdar safnafræði, en þó hefur nám hennar í bókmenntafræði og þjóðfræði einnig haft áhrif. Hún rannsakar jaðarmenningu, óhugnanlegar og sundrandi hliðar samfélagsins, svo sem víkinga, hrylling (á söfnum, í kvikmyndum, bókmenntum, o.fl.), pönk og óhefðbundnar sýningar og söfn. Hún hefur sérstakan áhuga á staðalímynd samfélaga, svo sem víkingum á Norðurlöndunum, og notkun þeirra og birtingarmynd í menningargeiranum og samfélögum almennt. Guðrún hefur gefið út margskonar rit, meðal annars: ‘We Come from the land of the Ice and Snow: Icelandic heritage and its usage in present day society’ (A Museum Studies Approach to Heritage, 2018). Grein ritaða í samstarfi við Sigurjón Baldur Hafsteinsson: Museology and the Icelandic Museum Field, Collaborations and Developments’ (Nordisk Museologi, 2018). Árið 2024 komu út tvö rit: ‘Uncanny Encounters with Iceland’s Vikings at the Saga Museum’ (í bókinni Viking Heritage and History in Europe) og bók, The Performance of Viking Identity in Museums: Useful Heritage in England, Iceland, and Norway.
- 2014 Ph.D. University of Leicester Safnafræði
- 2007 Meistarapróf Háskóli Íslands Bókmenntafræði
- 2005 BA Háskóli Íslands Bókmenntafræði
- 2005 Aukagrein Háskóli Íslands Þjóðfræði
- 2001 stúdentspróf Menntaskólinn við Hamrahlíð Menntaskóli, tungumálabraut