Brynja Þorgeirsdóttir
Íslensku- og menningardeild
Rannsóknir Brynju Þorgeirsdóttur beinast að tilfinningum, líkama og skynjun í norrænum fornbókmenntum ásamt samspili bundins og óbundins máls í Íslendingasögum. Einnig snúa þær að dróttkvæðum og forníslenskum læknis- og fræðitextum. Hún hefur birt fjölmargar greinar og bókarkafla um þessi viðfangsefni og er meðal ritstjóra bókanna The Prosimetrum of the Íslendingasögur: Aesthetic and Narrative Effects (De Gruyter, 2024), Saga Emotions (Manchester University Press, 2025) og New Studies on Emotion in Old Norse Literature (Brepols, 2026). Brynja er meðrannsakandi, ásamt Gareth Lloyd Evans við Háskólann í Oxford, í alþjóðlega rannsóknanetinu Old Norse Emotions Network, sem nýtur styrks frá breska rannsóknasjóðnum AHRC og rannsakar tilfinningar í fornnorrænum bókmenntum. Hún stýrir jafnframt verkefninu Forníslenskar lækningabækur (2026–2028) sem hlaut styrk úr Rannsóknasjóði Háskóla Íslands 2025.
- 2024 Postgraduate diploma Háskóli Íslands Kennslufræði háskóla
- 2020 Ph.D. Cambridge háskóli Norrænar miðaldabókmenntir
- 2015 MA Háskóli Íslands Almenn bókmenntafræði
- 2000 BA Háskóli Íslands Mannfræði