Erlendir nemendur sækja námskeið um sögu kristni á Íslandi

Hópur nemenda og kennara frá Frankfurt, Helsinki og Kaupmannahöfn er staddur hér á landi til að taka þátt í námskeiði í Skálholti og Reykjavík á vegum Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar Háskóla Íslands. Námskeiðið nefnist „Saga kristni á Íslandi og evrópskar flækjur“ og er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Kaupmannahafnarháskóla, Goethe-háskólans í Frankfurt og Háskólans í Helsinki og nýtur stuðnings Erasmus-áætlunarinnar.
Námskeiðið sækir hópur nítján nemenda frá fjórum háskólum og sex kennara sem taka þátt í kennslu námskeiðsins. Um er að ræða svonefnd BIP-námskeið (Blended Intensive Program) en tilgangur þeirra er að hvetja hópa háskólafólks til að þróa kennslu í alþjóðlegri samvinnu og að nota nýstárlegar og stafrænar leiðir til að koma kennsluefninu á framfæri. Námskeiðið sem hér um ræðir er kennt í tveimur hlutum, annars vegar á netinu þar sem fjallað verður um fræðilegan hluta námsefnisins og hins vegar í Skálholti þar sem nemendurnir skoða sögu kristninnar í landslagi, minnismerkjum og þekktum sögustöðum.
Haraldur Hreinsson, lektor í sögu kristinna trúarbragða við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands, hefur umsjón með námskeiðinu hér á landi og segir að þar sé fjallað um sögu kristni á Íslandi frá upphafi til dagsins í dag og reynt verði að setja þessa sögu í víðara samhengi evrópskrar og alþjóðlegrar þróunar. „Við greinum meðal annars hvernig trúarleg þekking, hugmyndir og stofnanaleg uppbygging dreifðust um svæðisbundnar kirkjudeildir og menntakerfi, hvaða stöðu Ísland hafði í síbreytilegu valdakerfi og hvernig staða Íslands á jaðrinum hafði áhrif á þróun trúarbragðanna í samspili við menningu og samfélag.“
Aðrir kennarar í námskeiðinu eru Stefan Michels og David Brandon Smith frá Háskólanum í Frankfurt, Anna Vind og Johnny Lindholm frá Kaupmannahafnarháskóla og Katharina Kunter frá Háskólanum í Helsinki.
