Skip to main content
22. júní 2026

Haraldur ráðinn forseti Hugvísindasviðs

Haraldur ráðinn forseti Hugvísindasviðs - á vefsíðu Háskóla Íslands

Haraldur Bernharðsson, prófessor í íslenskum miðaldafræðum, hefur verið ráðinn forseti Hugvísindasviðs Háskóla Íslands til næstu fimm ára. Hann var einn þriggja umsækjenda um starfið og tekur við því 1. júlí næstkomandi. 

Haraldur lauk BA-prófi í íslensku frá Háskóla Íslands árið 1991, MA-prófi í íslenskri málfræði frá sama háskóla 1995, MA-prófi í málvísindum frá Cornell-háskóla í Bandaríkjunum 1998 og doktorsprófi frá sama háskóla 2001. 

Haraldur var stundakennari við Cornell-háskóla 1994–1998 og við HÍ 1998 og 2001–2012. Þá var hann styrkþegi við málvísindadeild Harvard-háskóla 1999–2001, styrkþegi við Hugvísindastofnun HÍ 2001–2005, styrkþegi og sérfræðingur í rannsóknastöðu Árna Magnússonar við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum 2005–2011 og sinnti starfi sérfræðings við Hugvísindastofnun HÍ 2011–2012. Árið 2012 tók hann við starfi dósents í miðaldafræði við Íslensku- og menningardeild Hugvísindasviðs HÍ og hlaut framgang í starf prófessors árið 2025. 

Haraldur hefur um árabil gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum innan og utan Háskóla Íslands. Hann hefur meðal annars setið í mannanafnanefnd og Íslenskri málnefnd og var um skeið varaformaður Íslenskrar málnefndar. Hann hefur verið formaður Íslenska málfræðifélagsins, fulltrúi í nefnd mennta- og menningarmálaráðherra um eftirfylgni íslenskrar málstefnu í tölvuheiminum, í vinnuhópi um mótun málstefnu Stjórnarráðs Íslands og forstöðumaður Miðaldastofu HÍ. Þá hefur hann setið í stjórn Fulbright-stofnunarinnar, samstarfsnefnd HÍ og Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, stýrt starfshópi um eflingu meistaranáms við Hugvísindasvið HÍ, verið formaður kennslunefndar Hugvísindasviðs, setið í kennslumálanefnd háskólaráðs HÍ, jafnréttisnefnd Hugvísindasviðs og jafnréttisnefnd háskólaráðs HÍ og verið formaður málnefndar HÍ frá 2024 auk þess að taka þátt í skipulagningu fjölmargra innlendra og alþjóðlegra ráðstefna og viðburða. 

Haraldur hefur mikla reynslu af alþjóðlegu háskólaumhverfi og hefur verið í leiðandi hlutverki við uppbyggingu alþjóðlegs meistaranáms í íslenskum og norrænum miðaldafræðum við HÍ, sem er samstarfsverkefni Háskóla Íslands og þriggja erlendra háskóla. Hann er auk þess höfundur fjölda bóka, bókarkafla og greina sem birst hafa í ritrýndum tímaritum. 

„Ég hlakka til að takast á við þetta krefjandi verkefni með hæfileikaríku og skemmtilegu samstarfsfólki. Á Hugvísindasviði er unnið frábærlega gott starf og það er mikilvægt fyrir háskólann og samfélagið allt að vel sé búið að starfsfólki og nemendum á sviðinu. Ég vonast til að geta þar lagt gott til mála og geng glaður til verka,“ segir Haraldur.

„Það er mikill fengur að Haraldi Bernharðssyni í starf forseta Hugvísindasviðs. Hann býr yfir víðtækri reynslu af rannsóknum og kennslu og hefur sinnt ýmsum nefndar- og stjórnunarstörfum við Háskóla Íslands af kostgæfni. Reynsla hans af vettvangi íslenskra fræða er ekki síst mikilvæg nú þar sem sækja þarf fram í hugvísindum og styrkja íslenska tungu. Ég er sannfærð um að undir hans forystu muni Hugvísindasvið halda áfram að eflast og þróast í alþjóðlegu samhengi á sama tíma og það sinnir af krafti mikilvægu hlutverki sínu í íslensku samfélagi. Haraldur tekur við af Ólöfu Garðarsdóttur, sem hefur verið sviðsforseti í rúm fimm ár, og ég vil á þessum tímamótum þakka henni fyrir öflugt starf í þágu Hugvísindasviðs og Háskóla Íslands í heild, um leið og ég býð Harald velkominn til starfa,“ segir Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands.

Hugvísindasvið er eitt fimm fræðasviða Háskóla Íslands. Undir það heyra fjórar deildir: Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði, Guðfræði- og trúarbragðafræðideild, Íslensku- og menningardeild og Mála- og menningardeild.

Haraldur Bernharðsson