Skip to main content
16. júní 2026

Sigurður Karl Sverrisson útskrifaðist með ágætiseinkunn frá Lagadeild Háskóla Íslands

Sigurður Karl Sverrisson útskrifaðist með ágætiseinkunn frá Lagadeild Háskóla Íslands - á vefsíðu Háskóla Íslands

Sigurður Karl Sverrisson útskrifast með BA-gráðu í lögfræði frá Lagadeild Háskóla Íslands laugardaginn 13. júní. Sigurður er fæddur árið 2004 og alinn upp á Hellu, þar sem hann lauk grunnskólagöngu, áður en hann fór í Fjölbrautaskóla Suðurlands og útskrifaðist af náttúrufræðibraut árið 2023.

Þegar kom að því að velja háskólanám var Sigurður óviss um hvaða leið hann vildi fara.

„Ég vildi ekki endilega fara í verkfræði eða önnur raunvísindi. Lagadeild hafði komið til okkar í FSu með kynningu á náminu og mér fannst hún mjög áhugaverð. Þess vegna ákvað ég um sumarið að prófa lögfræði við HÍ.“

Aðspurður hvað standi helst upp úr í náminu nefnir Sigurður kennarana í Lagadeild.

„Kennararnir hafa yfirgripsmikla fræðilega þekkingu á efninu sem þeir kenna, en líka á praktískum atriðum. Þeir hafa augljósan metnað til kennslu og hvetja mann til fræðilegrar hugsunar og gagnrýni,“ segir hann.

Það sem reyndist mest krefjandi var umfang lesefnisins, ekki síst á fyrstu önninni.

„Það var mikið lesefni, bæði bækur og allir dómarnir sem þurfti að fara yfir. Fyrsta önnin var sérstaklega krefjandi, þegar maður var ekki búinn að tileinka sér tungutak lögfræðinnar. Það var í raun bara harkan sem kom mér í gegnum þetta.“

Sigurður segir að það hafi komið sér skemmtilega á óvart hversu vel var haldið utan um nemendur.

„Umræðutímarnir á vegum Lagadeildar voru mjög góðir, sérstaklega varðandi praktísk atriði á prófum og raunhæf verkefni. Upprifjunarnámskeið Orators voru líka mjög hjálpleg þegar kom að prófum.“

Lykillinn að góðum árangri segir hann hafa verið að vinna jafnt og þétt yfir önnina.

„Það skipti mestu máli að fara yfir efnið jafnóðum. Þá þurfti ekki að læra heilan áfanga á nokkrum vikum þegar styttist í próf. Fyrir raunhæf verkefni hjálpaði mest að æfa sig á eldri verkefnum og skrifa heildstæða úrlausn.“

Hann leggur einnig áherslu á mikilvægi svefns, hreyfingar og þess að gera eitthvað skemmtilegt inn á milli.

Meðfram náminu fékk Sigurður tækifæri til að vinna að verkefnum tengdum lögfræðinni, meðal annars hjá Fons Juris við bókaútgáfu. Þá aðstoðaði hann einnig Víði Smára Petersen og Karl Axelson við gerð Eignaréttar IV, sem er væntanleg.

Næstu skref hjá Sigurði ráðast að hluta af inntökuprófi í læknisfræði við Háskóla Íslands sem hann þreytir nú í júní, samhliða því að ljúka BA-náminu í lögfræði.

Aðspurður af hverju hann sé stoltastur eftir námið nefnir hann námsárangurinn.

„Ég er helst stoltur af námsárangrinum og að hann endurspegli vinnuna sem ég hef lagt í námið. Þetta á sérstaklega við um síðustu önnina, þar sem ég hef í raun verið í tvöföldu námi.“

Sigurður hvetur þau sem eru að íhuga háskólanám til að taka skrefið.

„Lagadeild er mjög góður valkostur ef maður er óviss. Hún kennir manni rökræna hugsun og að líta á hlutina heildstætt. Hvort sem maður ætlar sér að starfa sem lögfræðingur eða ekki tel ég námið mjög gagnlegt og horfi til baka stoltur og ánægður með árangur minn.“