Áhrif stefnumótunar og áfalla á seiglu í ferðaþjónustu - dæmi frá vínhéruðum Suður-Afríku.

Askja
Dr. Gustav Visser flytur fyrirlesturinn „Áhrif stefnumótunar og áfalla á seiglu í ferðaþjónustu - dæmi frá vínhéruðum Suður-Afríku“.
Fyrirlesturinn er á vegum námsbrautar í landfræði og ferðamálafræði.
Í erindinu er fjallað um hvernig viðbrögð við áföllum eins og COVID-19 faraldrinum faraldri hafa verið hvati nýjunga í ferðaþjónustu. Tengt er við fræðilega umræðu um seiglu og sjálfbærni í ferðaþjónustu og velt upp spurningum um það hvort að staðbundnar breytingar í kjölfar viðbragða við áföllum séu í samræmi við fræðilega umræðu og stefnumótun.
Gustav Visser er prófessor í landfræði við Stellenbosch háskóla í Suður-Afríku. Í rannsóknum hefur hann m.a. beint sjónum að sambandi ferðamennsku og breytinga á borgarhverfum og sjálfsmyndartengdri neysluhegðun. Gustav er höfundur yfir 160 fræðigreina og bókakafla, auka tíu bóka.
Dr. Gustav Visser
