Að skoða framandi heima: Íslenskir ferðalangar í fjarlægum löndum

Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands og Nýp menningarsetur, með stuðningi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, efna til málstofu sem nefnist Að skoða framandi heima, íslenskir ferðalangar í fjarlægum löndum frá 18. öld til öndverðrar 20. aldar: Árni Magnússon frá Geitastekk, Jón Vídalín og Steingrímur Matthíasson.
Haldið að Nýp á Skarðsströnd, laugardaginn 20. júní kl. 13:30-15:30.
Fyrirlesarar:
- Erla Hulda Halldórsdóttir. Átta sinnum í kringum jörðina. Sjóferðir Jóns Vídalíns stýrimanns 1774–1800
- Karen Oslund. At Sea with Languages: Interpreting the Travels of Árni Magnússon of Geitastekkur.
- Kristín Ingvarsdóttir. Steingrímur Matthíasson: Skipslæknir í Austurlöndum 1903-1904.
Að loknu málþingi verður farið í stutta vettvangsferð í nágrenninu og daginn eftir, 21. júní verður farið í vettvangsferð í Hörðudal á slóðir Árna Magnússonar frá Geitastekk.