Kynningarfundur fyrir nýnema í íslensku sem öðru máli

Háskólatorg
Stofur 102, 103 og 104
Íslenska sem annað mál býður nýnemum á kynningarfundi í stofum 102, 103 og 105 á Háskólatorgi, fimmtudaginn 20. ágúst kl. 9:00–11:00.
- Hagnýt íslenska: Stofa HT 102
- Íslenskustoð: Stofa HT 103
- BA-nám: Stofa HT 104
Á fundinum verða veittar hagnýtar upplýsingar, farið yfir skipulag námsins og tækifæri gefst til að spyrja kennara og deildarstjóra spurninga.
Að þessum fundum loknum (kl. 11:00) verður sameiginlegur fundur allra námsleiða með Nemendaráðgjöf HÍ, Spretti, Ritveri og nemendafélaginu Huldumáli í stofu HT 104.
Kennsla hefst mánudaginn 24. ágúst. Nýnemadagar Háskóla Íslands hefjast 31. ágúst.
Á nýnemavef Háskóla Íslands, vef Stúdentaráðs og á vef Hugvísindasviðs eru gagnlegar upplýsingar fyrir nýnema um námið og skólann, þar á meðal stundaskrár. Eins er hægt að fá innsýn í starfið á Facebook-síðum skólans, sviðsins og námsbrautarinnar og á Instagram-síðum sviðs og skóla.
Ef einhverjar spurningar vakna um námið er hægt að hafa samband við starfsfólk á skrifstofu í síma 525 4400, senda okkur tölvupóst á netfangið icelandic@hi.is eða koma við á skrifstofu Hugvísindasviðs í Aðalbyggingu (3. hæð); hún er opin kl. 10–12 og 13–15 virka daga.
Íslenska sem annað mál býður nýnemum á kynningarfundi í stofum 102, 103 og 105 á Háskólatorgi
