Ný bók um áhrif upplýsingarinnar og byltingaaldar á þróun Bandaríkjanna

Út er komin bókin The Scientific-Military State: How Enlightened Engineers Reinvented Early American Government eftir Svein Mána Jóhannesson, rannsóknarsérfræðing hjá Rannsóknasetrinu Eddu. Útgefandi er University of Chicago Press.
Í bókinni er sjónum beint að áhrifum upplýsingarinnar og byltingaaldar á þróun nútímaríkisins í Bandaríkjunum frá stofnun þeirra árið 1776 fram að miðri nítjándu öld. Fjallað er um hvernig bandarískir stjórnmálamenn og teknókratar nýttu sér nýjungar í Frakklandi á sviði vísinda, tækni, menntunar og hernaðar til að bregðast við alþjóðlegri kreppu í ríkisfjármálum. Þetta leiddi til umbreytinga á ríkisvaldinu þar sem hefðbundin stjórntæki voru lögð til hliðar og stuðst við nýjar hugmyndir, stofnanaumgjörð og stjórnvaldstækni. Sérfræðingar mótuðu nýjar ríkisstofnanir á grundvelli tækniveldis og byggðu upp umfangsmikla innviði sem gerbreyttu hernaði og hernaðargetu Bandaríkjanna gegn evrópskum heimsveldum. Þessi þáttur í uppbyggingu bandaríska ríkisins hefur ekki verið rannsakaður áður, en með þessu var enn fremur lagður grunnur að umfangsmiklum landvinningum þar sem frumþjóðir voru hraktar af landi sínu. Um leið varð til nýtt hlutverk fyrir alríkið í efnahagsstjórn landsins — meðal annars með notkun á vinnuafli þræla. Þannig var ekki aðeins samband hins opinbera við borgarana endurskilgreint, heldur voru valdatengsl innan amerísks samfélags endurmótuð.
Sveinn Máni lauk doktorsprófi frá Cambridge-háskóla árið 2019 og er rannsóknarsérfræðingur hjá Rannsóknasetrinu EDDU við Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Áður gegndi Sveinn Máni stöðu nýdoktors við Edinborgarháskóla og Sagnfræðistofnun HÍ.
