Skip to main content
27. mars 2026

Varði doktorsritgerð um vaðmál sem gjaldmiðil og útflutningsvöru

Varði doktorsritgerð um vaðmál sem gjaldmiðil og útflutningsvöru - á vefsíðu Háskóla Íslands

Meghan Anne Korten hefur varið doktorsritgerð sína í sagnfræði, Intertwined Threads: The Value and Function of Vaðmál as Cloth and Money, and Beyond, við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði við Háskóla Íslands. Ritgerðin var unnin undir leiðsögn Sverris Jakobssonar, prófessors í sagnfræði við Háskóla Íslands en einnig voru í doktorsnefnd þau Agnes Arnórsdóttir, dósent við háskólann í Árósum í Danmörku og Helgi Þorláksson, prófessor emeritus í sagnfræði við Háskóla Íslands.

Andmælendur við vörnina voru Susanna Harris, lektor við háskólann í Glasgow í Skotlandi, og Eva Andersson, lektor við háskólann í Gautaborg í Svíþjóð. Gauti Kristmannsson, deildarforseti Íslensku- og menningardeildar, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands 24. mars. 

Um rannsóknina

Vaðmál var aðalgjaldmiðill og verslunarvara á miðöldum á Íslandi, auk þess sem það var fjölnota vefnaðarvara til klæðagerðar og annarra nota. Í ritgerð sinni fjallar Meghan Anne Korten um hvernig efnislegir eiginleikar og gæði vaðmáls mótuðu hlutverk þess sem gjaldmiðils og útflutningsvöru. Enn fremur verður kannað hvernig vaðmál miðlaði stöðu og sjálfsmynd í samfélaginu. Rannsóknin byggir á heimildum frá 12.–14. öld, þar á meðal Íslendingasögum, samtíðarsögum, Grágás, Jónsbók, máldögum og annálum. Leitast er við að greina fimm helstu nýtingarform vaðmáls: sem efnislega, fagurfræðilega, í viðskiptum, við tengslamyndun og sem félagslegt aðgreiningartæki. Niðurstöðurnar sýna að framleiðsla, notkun og viðskipti voru órjúfanlega tengd og endurspegla félagslega, efnahagslega og menningarlega vídd vaðmáls.

Um doktorinn

Meghan Anne Korten er með BA-gráðu í sagnfræði frá Brock-háskóla í St. Catharines í Ontario og MA-gráðu frá Memorial University of Newfoundland í St. John’s á Nýfundnalandi.

Agnes Arnórsdóttir, Sverrir Jakobsson, Gauti Kristmannsson, Susanna Harris, Meghan Anne Korten, Eva Andersson, Ólöf Garðarsdóttir og Helgi Þorláksson.