Verkfræðinemi á Vetrarólympíuleikum

Eftirminnilegum Vetrarólympíuleikum, sem fram fóru á Ítalíu, lauk um liðna helgi. Leikarnir skilja eflaust eftir sig ljúfsáran söknuð í hugum fjölmargra Íslendinga sem hafa fylgst með íþróttafólki í fremstu röð reyna með sér í jafnólíkum greinum og krullu, stórsvigi, íshokkíi, magasleðakeppni og skíðagöngu. Ólíklegt verður hins vegar að telja að mörg muni muna jafnvel eftir leikunum og Elín Elmarsdóttir Van Pelt, nemi í verkfræðilegri eðlisfræði við Háskóla Íslands, sem upplifði langþráðan draum þegar hún fékk keppnisrétt í bæði stórsvigs- og svigkeppni leikanna. Elín segir upplifunina í Cortina hafa verið ólgeymanlega og segist jafnframt hafa mætt góðum skilningi hjá kennurum sínum þegar ljóst varð að hún var að fara á leikana.
Elín hóf nám í verkfræðilegri eðlisfræði í HÍ í haust og var í hópi nýnema sem fengu styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði skólans. „Hún hefur æft skíði frá átta ára aldri og varð Íslandsmeistari í stórsvigi 2024. Þá hefur hún náð góðum árangri á erlendum mótum og er efst íslenskra kvenna á heimslista í svigi og næstefst í stórsvigi. Hún stefnir ótrauð á að ná lágmörkum fyrir Vetrarólympíuleikana í Cortina 2026,“ sagði m.a. í umfjöllun um Elínu sem birt var með frétt á vef Háskólans þegar styrkirnir voru afhentir í haust.

Elín Elmarsdóttir Van Pelt tekur við styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands úr hendi Silju Báru R. Ómarsdóttur, rektors Háskóla Íslands, í upphafi skólaárs. MYND/Kristinn Ingvarsson
Þótt hún hafi byrjað að æfa átta ára gömul man Elín ekki eftir sér öðruvísi en á skíðum. „Ég bjó í Suður-Þýskalandi þegar ég var lítil og fór mjög oft á skíði í Ölpunum með foreldrum mínum. Við fluttum heim til Íslands þegar ég var átta ára og byrjaði þá að æfa með Skíðadeild Víkings. Foreldrar mínir voru bæði þjálfarar og eiga þau stóran hlut í að ég byrjaði að æfa,“ segir hún um skíðaáhugann.
Langstærsta mót ferilsins
Elín hefur á undanförnum árum skipað sér í hóp fremstu skíðakvenna landsins en þar sem keppni um þátttökurétt á Ólympíuleikum er geysihörð varð það ekki endanlega ljóst að hún væri á leið til Ítalíu fyrr í lok janúar, eða u.þ.b. tveimur vikum fyrir setningarhátíð leikanna. „Ég þurfti nokkra daga til að virkilega fatta að ég væri að fara að keppa á Ólympíuleikunum, þetta hefur verið draumur síðan ég var barn en að það væri í alvörunni að fara að gerast fannst mér ótrúlegt. Eftir að það síaðist inn var ég bæði spennt og stressuð þar sem þetta er langstærsta mót ferilsins,“ segir hún aðspurð um tilfinninguna að vera valin til þátttöku á Ólympíuleikunum.

Elín veifar íslenska fánanum á setningarathöfn Vetrarólympíuleikanna á Ítalíu. MYND/Úr einkasafni
Íslendingar sendu alls fimm þátttakendur á leikana og var Elín annar af fánaberum Íslands á setningarhátíðinni í Cortina. „Það var gríðarlega skemmtilegt og ótrúlegur heiður að fá að bera íslenska fánann á setningarhátíðinni. Það var meiriháttar stemning í Cortina og þetta er augnablik sem ég mun alltaf muna eftir,“ segir hún.
„Þarna var ég að keppa á móti öllum bestu skíðakonum heims, eins og Mikaelu Shiffrin sem er algjör goðsögn í skíðaheiminum, þannig að það var alveg klikkað!“ segir Elín um þátttökuna á Ólympíuleikunum. MYND/Úr einkasafni

Barist við þær allra bestu
Elín hefur allnokkra reynslu af þátttöku í alþjóðlegum mótum og þegar hún er spurð að hvaða leyti þátttaka í Ólympíuleikum sé ólík fyrri mótum stendur ekki á svari: „Þarna var ég að keppa á móti öllum bestu skíðakonum heims, eins og Mikaelu Shiffrin sem er algjör goðsögn í skíðaheiminum, þannig að það var alveg klikkað! Svo var allt í kringum keppnina sjálfa miklu stærra líka, eins og Ólympíuþorpið þar sem svo margar þjóðir voru komnar saman og maður fann ólympíuandann og stemninguna á marksvæðinu með þúsundum áhorfenda. Umfjöllunin í sjónvarpinu og samfélagsmiðlum hefur líka verið sú mesta sem ég hef upplifað.“
En hvernig skyldi hún meta árangur sinn nú þegar nokkrir dagar eru frá því að hún lauk keppni. „Ég er ofboðslega sátt við stórsvigið og var virkilega ánægð með hvernig ég skíðaði það og tek þessa flottu reynslu með mér. Brautin var krefjandi en skemmtileg og ég er ánægð með hvað ég tæklaði stökkin í brautinni vel þar sem ég er ekki vön þeim. Svigið fór því miður ekki eins og ég ætlaði mér en bæði færið og brautin voru mjög krefjandi. Lítil mistök á miklum hraða urðu til þess að ég náði ekki að klára fyrri ferðina en sú reynsla fer líka í reynslubankann,“ segir Elín sem segist aðspurð sannarlega vilja fara aftur á Ólympíuleika. „Þetta var ógleymanleg upplifun!“

Elín á fleygiferð niður brekkuna í stórsviginu í Cortina. MYND/Úr einkasafni
Fundið fyrir góðum skilningi og stuðningi frá kennurum
Eins og áður kom fram stundar Elín nám í verkfræðilegri eðlisfræði en það veitir góðan undirbúning fyrir fjölbreytt störf þar sem bæði eðlisfræði og stærðfræði kemur við sögu. „Ég hafði rosalega gaman af raungreinum í menntaskóla og mig langaði að læra meira um eðlisfræði. Mér fannst verkfræðileg eðlisfræði tilvalin þar sem verkfræðitengingin gerir brautina hagnýtari,“ segir Elín um valið á námi.
Hún segir námið fela í sér mikla eðlisfræði og rosa mikla stærðfræði. „Svo erum við líka búin að vera með verklega eðlisfræði sem mér fannst mjög skemmtilegt!“ segir hún.
Íþróttafólk í fremstu röð ver miklum tíma í æfingar og keppni og í tilviki skíðafólks þarf oft að fara til útlanda til þess. Hvernig skildi hafa gengið að samræma nám og æfingar í vetur? „Haustönnin gekk mjög vel þar sem ég var að miklu leyti heima en fór í nokkrar æfingabúðir erlendis í september, október og nóvember, u.þ.b. 10-17 daga í senn. Ég gat þá mætt á fyrirlestra meðan ég var heima en lærði svo sjálf þegar ég var erlendis. Það hjálpaði mikið að hafa vini í náminu sem gátu sagt manni hvað var í gangi þegar ég var í burtu. Núna á vorönn er ég ekki í fullu námi þar sem ég er búsett allan tímann á Ítalíu að æfa og keppa. Eftir að ég var valin á Ólympíuleikana og meðan á þeim stóð hafði ég minni tíma til að sinna náminu en ég hef fengið góðan skilning og stuðning frá kennurum,“ segir hún.
Keppnistímabilinu er ekki lokið hjá Elínu þótt stærsta mótið sé að baki. „Það sem tekur við núna er fyrst smá frí og lærdómur en svo æfingar á Ítalíu með liðinu mínu fram að HM ungmenna í Noregi um miðjan mars og svo Skíðamót Íslands í lok mars. Ég verð svo heima í skólanum í apríl fram að prófum!“ segir Elín full tilhlökkunar.
