Hugfæri og tæknileikar: Um hugsandi hljóðfæri og tilraunakennd hugvísindi
Aðalbygging
Stofa 220
Þórhallur Magnússon rannsóknarprófessor heldur fyrirlesturinn „Hugfæri og tæknileikar: Um hugsandi hljóðfæri og tilraunakennd hugvísindi" á vegum Heimspekistofnunar Háskóla Íslands. Þórhallur fjallar um verkefni sitt Snjallhljóðfæri (Intelligent Instruments) sem styrkt er af Evrópska rannsóknarráðinu. Hann mun annarsvegar útskýra hvernig hann setur skapandi gervigreind í samhengi við Sókratíska aðferð (e. elenctics) með það að markmiði að auka skilning okkar og þróa samskipti okkar við skapandi gervigreindarkerfi. Hinsvegar mun hann fjalla um þá þverfaglegu aðferðafræði sem hópurinn notast við á rannsóknarstofunni.
Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu 220 í Aðalbyggingu Háskóla Íslands fimmtudaginn 18. apríl kl. 15:00 - 16:30. Verið öll velkomin.
Frekari upplýsingar um fyrirlesturinn og rannsóknarverkefnið má finna hér.
Þórhallur Magnússon.