Meistarafyrirlestur í iðnaðarverkfræði - Bjarni Benedikt Gunnarsson
![Meistarafyrirlestur í iðnaðarverkfræði - Bjarni Benedikt Gunnarsson - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_kri_verold_byggingar_180813_002.jpg?itok=sfxhTEKj)
VR-II
Stofa 155
Meistaranemi: Bjarni Benedikt Gunnarsson
Heiti verkefnis: Smávirkjanir
___________________________________________
Leiðbeinandi: Rögnvaldur J. Sæmundsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild HÍ
Einnig í meistaranefnd: Rúnar Unnþórsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild HÍ
Prófdómari: Anna Hulda Ólafsdóttir, skrifstofustjóri loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofunni
Ágrip
Auka þarf orkuvinnslu á Íslandi ef fyrirætlanir stjórnvalda um orkuskipti eiga að ná fram að ganga. Smávirkjanir geta verið liður í þeirri orkuvinnslu, en þá er átt við virkjanir minni en 10 MW að uppsettu afli sem ekki hljóta umfjöllun Verkefnisstjórnar um verndar- og orkunýtingaráætlun. Virkjunarframkvæmdir eru flóknar framkvæmdir og ýmsir hagsmunaaðilar sem verða fyrir áhrifum. Taka þarf tillit til margra þátta við val útfærslu smávirkjunar. Hér er sett fram aðferðafræði sem tekur á því með tólum fjölþátta ákvarðanatöku (e. Multi Criteria Decision Making). Samtvinnuð eru reiknilíkönin AHP og PROMETHEE og þeim beitt á 36 valda ákvörðunarþætti sem flokkaðir eru saman í 6 flokka. Þættir sem ekki eru mælanlegir fá einkunnir á kvarðanum 1-3 þar sem 1 er best. Aðferðafræðin er einföld í notkun og á að nýtast framkvæmdaaðilum við val á útfærslu virkjunar.