Nýr sjóður hefur verið stofnaður undir hatti Styrktarsjóða Háskóla Íslands og nefnist hann Vísindi og velferð: Styrktarsjóður Sigrúnar og Þorsteins. Stofnendur sjóðsins eru hjónin Sigrún Júlíusdóttir og Þorsteinn Vilhjálmsson, sem bæði eru fyrrverandi prófessorar við skólann. Sigrún og Þorsteinn undirrituðu skipulagsskrá sjóðsins í dag ásamt Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands. MYNDIR/Kristinn Ingvarsson
Til þess að fá að nota myndirnar verður að senda póst til Höllu Hallsdóttur, hallah@hi.is. Einnig á að skila öllum myndum til hennar sem teknar eru á vegum Háskólans.