Skip to main content
15. janúar 2021

Á sjöunda tug rannsóknastyrkja til vísindamanna sem tengjast HÍ

Á sjöunda tug rannsóknastyrkja til vísindamanna sem tengjast HÍ - á vefsíðu Háskóla Íslands

Vísindamenn Háskóla Íslands og tengdra stofnana hlutu sjö af níu öndvegisstyrkjum sem úthlutað var úr Rannsóknasjóði Íslands í ár og samtals 65 styrki alls úr sjóðnum. Niðurstöður úthlutunar voru kynntar í dag.

Rannsóknasjóður Íslands er samkeppnissjóður, hýstur hjá Rannís, sem styrkir árlega rannsóknaverkefni á öllum sviðum vísinda við íslenskar stofnanir, allt frá styrkjum til doktorsnema til öndvegisstyrkja. Styrkir eru að jafnaði veittir til þriggja ára í senn. 

Undanfarin ár hafa framlög í sjóðinn verið um 2,5 milljarðar en m.a. til þess að bregðast við áhrifum kórónuveirufaraldursins og styðja við aukið vísindastarf og nýsköpun þekkingar í landinu ákváðu stjórnvöld að veita 3,7 milljarða króna í sjóðinn í ár. Hefur úthlutuð heildarupphæð hafa aldrei verið hærri. 

Að þessu sinni bárust sjóðnum 402 gildar umsóknir og voru 82 þeirra styrktar eða rúmlega 20% umsókna.

Hæstu styrkirnir sem Rannsóknasjóður veitir eru svokallaðir öndvegisstyrkir en þeir renna til stórra verkefna sem þykja skara fram úr á sínu sviði og hafa alþjóðlega tengingu. Alls var níu slíkjum styrkjum úthlutað að þessu sinni og koma sjö þeirra í hlut vísindamanna Háskóla Íslands og tengdra stofnana. Þeir eru m.a. á sviði umhverfis- og byggingarverkfræði, lífvísinda, læknavísinda, þjóðfræði og sagnfræði.

Alls voru 38 verkefnisstyrkir á fjölbreyttum fræðasviðum veittir að þessu sinni og 28 þeirra hljóta vísindamenn HÍ og tengdra stofnana. Styrktar rannsóknir eru m.a. á sviði eðlisfræði, efnafræði, jarðfræði, tölvunarfræði, líffræði, vistfræði, lífvísinda, lýðheilsu, kynjafræði, stjórnmálafræði, menntavísinda, fötlunarfræði og íslenskrar bókmennta og málfræði.  

Nærri tvöfalt fleiri nýdoktorarstyrkir voru veittir í ár en í fyrra, eða 17 talsins, og koma þeir allir í hlut ungra vísindamanna við Háskóla Íslands. Rannsóknir þeirra snerta fjölbreytt svið verkfræði, náttúruvísinda, hugvísinda, félagsvísinda og heilbrigðisvísinda.

Þá koma 13 af 18 doktorastyrkjum úr Rannsóknarsjóðnum í hlut doktorsnema við Háskóla Íslands. Þeir fást m.a. við arkitektúr kvikukerfisins í Öræfajökli, reynslu ungmenna af COVID-19-faraldrinum, drifkrafta í samskiptum háhyrninga, rakningu á ferðalagi fósturfruma í þroskun fylgju og meðgöngueitrun, lestur í samtímanum, handrit Egilssögu, samfélagsneðansjávarfornleifafræði og rannsóknir á söfnum. 

Yfirlit yfir styrkt verkefni úr Rannsóknasjóði Íslands má nálgast á vef Rannís.

Háskóli Íslands færir styrkþegum innilegstu hamingjuóskir með styrki úr Rannsóknasjóði Íslands.
 

Aðalbygging og sól

Vísindamenn Háskóla Íslands og tengdra stofnana hlutu sjö af níu öndvegisstyrkjum sem úthlutað var úr Rannsóknasjóði Íslands í ár og samtals 65 styrki alls úr sjóðnum. MYND/Kristinn Ingvarsson