Rúmlega 20 fá framgang í starfi
Tuttugu og þrír akademískir starfsmenn af öllum fimm fræðasviðum Háskóla Íslands hafa fengið framgang í starfi að undangengnu ítarlegu faglegu mati á vegum dóm- og framgangsnefnda fræðasviðanna og forseta þeirra.
Akademískir starfsmenn geta árlega sótt um framgang í starfi og er hann jafnan veittur einu sinni á ári, þ.e. í lok skólaárs. Mat á umsóknum er í höndum sérstakrar framgangsnefndar en hún leitar álits hjá dóm- og framgangsnefndum hvers fræðasviðs. Í framhaldinu ákveður rektor á grundvelli fyrirliggjandi dómnefndarálita og afgreiðslu framgangsnefndar hverjum skuli veita framgang.
Flestir fá framgang í starf prófessors, eða 18, þrír frá framgang í starf dósents og þá fær einn starfsmaður framgang í starf fræðimanns og annar í starf vísindamanns innan stofnana skólans.
Að þessu sinni fengu eftirtaldir starfsmenn framgang:
Félagsvísindasvið
Viðar Halldórsson í starf prófessors við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild | |
Hervör Alma Árnadóttir í starf dósents við Félagsráðgjafardeild | |
Kári Kristinsson í starf prófessors við Viðskiptafræðideild | |
Sveinn Agnarsson í starf prófessors við Viðskiptafræðideild |
Heilbrigðisvísindasvið
Páll Biering í starf prófessors við Hjúkrunarfræðideild | |
Haukur Hjaltason í starf prófessors við Læknadeild | |
Kristjana Einarsdóttir í starf prófessors við Læknadeild | |
Berglind Guðmundsdóttir í starf prófessors við Læknadeild. | |
Martha Ásdís Hjálmarsdóttir í starf prófessors við Læknadeild | |
Urður Njarðvík í starf prófessors við Sálfræðideild |
Hugvísindasvið
Elmar Geir Unnsteinsson í starf fræðimanns við Hugvísindastofnun | |
Guðrún Theódórsdóttir í starf dósents við Íslensku- og menningardeild | |
Gísli Magnússon í starf prófessors við Mála- og menningardeild |
Menntavísindasvið
Kristján Jóhann Jónsson í starf prófessors við Menntavísindasvið | |
Helga Rut Guðmundsdóttir í starf prófessors við Deild faggreinakennslu | |
Sólveig Jakobsdóttir í starf prófessors við Deild faggreinakennslu | |
Þuríður Jóna Jóhannsdóttir í starf prófessors við Deild faggreinakennslu | |
Svanborg Rannveig Jónsdóttir í starf prófessors við Deild menntunar og margbreytileika |
Verkfræði- og náttúruvísindasvið
Björn Margeirsson í starf dósents við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði - og tölvunarfræðideild | |
Rögnvaldur J. Sæmundsson í starf prófessors við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild | |
Benjamin David Hennig í starf prófessors við Líf- og umhverfisvísindadeild | |
Sigurður Örn Stefánsson í starf prófessors við Raunvísindadeild | |
Unnar Bjarni Arnalds í starf vísindamanns við Raunvísindastofnun |
Háskóli Íslands færir öllu þessu fólki hamingjuóskir með framganginn.