Mannfræði
210 einingar - Doktorspróf
Doktorsritgerð er metin til 180 eininga. Gera má kröfu um að nemandi í doktorsnámi taki að auki allt að 60 eininga bóknámshluta, sé talin þörf á að viðkomandi bæti undirstöðuþekkingu sína á fræðasviði ritgerðarinnar. Að öllu jöfnu er gert ráð fyrir að nemandinn stundi hluta námsins við erlendan háskóla.
Um námið
Doktorsnám í félagsfræði samanstendur af 180 eininga ritgerð og 30 einingum í námskeiðum á fræðasviði doktorsverkefnis. Námsbrautin getur, þar að auki, gert kröfu um að doktorsnemandi taki allt að 60 einingar í námskeiðum, í samráði við leiðbeinanda. Nemendur í doktorsnámi er skylt að taka þátt í málstofum doktorsnámsins í samráði við leiðbeinanda.
Að námi loknu
Við útskrift býr nemandi yfir sérfræðiþekkingu innan fræðigreinar, hann getur beitt sérhæfðum aðferðum og verklagi og hagnýtt þekkingu sína og leikni í starfi.
Umsækjandi skal hafa lokið meistaraprófi (kandídatsprófi) eða sambærilegu prófi með fyrstu einkunn.