Skip to main content

Fundargerð háskólaráðs 7. maí 2026

6/2026

HÁSKÓLARÁÐSFUNDUR

Ár 2026, fimmtudaginn 7. maí var haldinn fundur í háskólaráði Háskóla Íslands sem hófst kl. 13.00.

Fundinn sátu Silja Bára R. Ómarsdóttir, Arnar Þór Másson, Davíð Þorláksson, Elísabet Siemsen, Gréta Dögg Þórisdóttir (varamaður fyrir Andra Már Tómasson), Hólmfríður Garðarsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Ólafur Pétur Pálsson, Ragný Þóra Guðjohnsen og Viktor Pétur Finnsson. Fundinn sat einnig Magnús Diðrik Baldursson sem ritaði fundargerð. Katrín Atladóttir var fjarstödd og varamaður hennar einnig.

1.    Setning fundar.
Rektor setti fundinn og greindi frá því að fundargerðir síðustu tveggja funda hefðu verið samþykktar, undirritaðar rafrænt og birtar á háskólavefnum. Þá spurði rektor hvort einhver gerði athugasemd við dagskrá fundarins og var svo ekki. Loks spurði rektor hvort einhver lýsti sig vanhæfan til að taka þátt í meðferð máls á dagskrá og greindi Ragný Þóra frá því að hún myndi ekki taka þátt í afgreiðslu kærumáls nr. 10/2025 undir dagskrárlið 5. Ekki voru gerðar athugasemdir við liðinn „bókfærð mál“ og skoðast hann því samþykktur.

2.    Fjármál Háskóla Íslands. Staða, horfur, áætlun:

a.    Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar 2026-2030.
Inn á fundinn kom Guðmundur R. Jónsson, framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar, og fór yfir fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2026-2030 varðandi háskólastigið almennt og Háskóla Íslands sérstaklega. Málið var rætt og svaraði Guðmundur R. spurningum. 

3.    Niðurstöður 36. háskólaþings 29. apríl 2026.
Rektor reifaði niðurstöður 36. háskólaþings sem haldið var 29. apríl sl. Meginviðfangsefni þingsins að þessu sinni var mótun sameiginlegrar stefnu Háskóla Íslands fyrir tímabilið 2026-2031, HÍ 31. Á þinginu voru einnig kjörnir þrír fulltrúar háskólasamfélagsins í háskólaráð og varamenn þeirra fyrir tímabilið 1.7.2026-30.6.2028. Var það niðurstaða kjörsins að aðalfulltrúar verða Ólafur Pétur Pálsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði, Hrefna Dögg Gunnarsdóttir, lektor við Lagadeild á Félagsvísindasviði, og Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent við Deild menntunar og margbreytileika á Menntavísindasviði. Varafulltrúi Ólafs Péturs verður Eiríkur Steingrímsson, prófessor við Læknadeild á Heilbrigðisvísindasviði, varafulltrúi Hrefnu Daggar verður Arngrímur Vídalín, dósent við Deild faggreinakennslu á Menntavísindasviði, og varamaður Ragnýjar Þóru verður Þórir Jónsson Hraundal, lektor við Mála- og menningardeild á Hugvísindasviði. 

4.    Ytri úttekt á Háskóla Íslands og undirbúningur nýrrar heildarstefnu fyrir tímabilið 2026-2031.
Inn á fundinn komu Rögnvaldur Jóhann Sæmundsson, aðstoðarrektor vísinda og þverfræðileika, og Þór Hauksson, stefnu- og gæðastjóri, og gerðu grein fyrir stöðu mála varðandi undirbúning ytri úttektar Gæðamats háskóla á Háskóla Íslands og stöðu mála og næstu skrefum við mótun nýrrar heildarstefnu fyrir Háskóla Íslands, sbr. einnig dagskrárlið 3 hér að framan. Um er að ræða tvö af stærstu verkefnum Háskólans á þessu ári. Málið var rætt ítarlega og spurningum svarað. 

Rögnvaldur, Þór, Katrín og Viktor Pétur viku af fundi.

Kaffihlé

5.    Álit kærunefndar í málefnum nemenda nr. 6/2025, nr. 7/2025, nr. 10/2025, nr. 1/2026 og nr. 2/2026.
Inn á fundinn kom Trausti Fannar Valsson, dósent og formaður kærunefndar í málefnum nemenda, og gerði grein fyrir áliti nefndarinnar í málum nr. 6/2025, nr. 7/2025, nr. 10/2025, nr. 1/2026 og nr. 2/2026. sem lá fyrir fundinum. Málið var rætt og svaraði Trausti Fannar spurningum. 

– Samþykkt einróma að fallast á þau rök sem fram koma í áliti kærunefndar í málefnum nemenda í málum nr. 6/2025, nr. 7/2025, nr. 10/2025, nr. 1/2026 og nr. 2/2026 og er niðurstaða háskólaráðs í samræmi við tillögur nefndarinnar. Ragný Þóra vék af fundi við afgreiðslu máls nr. 10/2025. 

Trausti Fannar vék af fundi.

6.    Bókfærð mál.

a.    Reglur um akademísk gestastörf.
– Samþykkt.

b.    Frá Heilbrigðisvísindasviði: Tillaga að breytingu á 7. gr. reglna nr. 60/2019 vegna afnáms hámarksfjölda eininga úr M-námskeiðum Sálfræðideildar í kröfu deildarinnar um einingafjölda og tímalengd náms.
– Samþykkt.

c.    Frá Heilbrigðisvísindasviði: Tillaga að breytingu á 6. gr. reglna nr. 60/2019 vegna aðgangskröfu um inntökupróf í íslensku á stigi B2 í meistaranám við Lyfjafræðideild og Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild.
– Samþykkt.

d.    Skipan tilnefningarnefndar Háskóla Íslands og uppfært erindisbréf.
– Samþykkt.

7.    Mál til fróðleiks.
a.    Fulltrúar Háskóla Íslands í stjórn RHnets.
b.    Fréttabréf Háskólavina, dags. 30. apríl 2026.
c.    Upplýsingafundur rektors 5. maí 2026.
d.    Ársreikningur Háskóla Íslands 2025.

Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 15.30.