4/2026
HÁSKÓLARÁÐSFUNDUR
Ár 2026, föstudaginn 20. mars til mánudagsins 23. var haldinn rafrænn fundur í háskólaráði Háskóla Íslands.
Þátt tóku í fundinum þau Silja Bára R. Ómarsdóttir, Andri Már Tómasson, Arnar Þór Másson, Davíð Þorláksson, Elísabet Siemsen, Hólmfríður Garðarsdóttir, Katrín Atladóttir, Katrín Jakobsdóttir, Ólafur Pétur Pálsson, og Ragný Þóra Guðjohnsen. Viktor Pétur Finnsson tók ekki þátt í fundinum. Magnús Diðrik Baldursson ritaði fundargerð.
1. Setning fundar.
Fundurinn hófst 20. mars kl. 13.00 með sendingu tölvupósts til fulltrúa í háskólaráði.
2. Tilnefning fulltrúa Háskóla Íslands í stjórn Vísindagarða Háskóla Íslands ehf.
Fyrir fundinum lá tillaga tilnefningarnefndar um að fulltrúar Háskóla Íslands í stjórn Vísindagarða Háskóla Íslands ehf. 2026-2027 verði þau Sigurður Magnús Garðarsson, prófessor og forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands, formaður, Arna Hauksdóttir, prófessor og forstöðumaður Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands Linda Jónsdóttir, fjármálastjóri Alvotech, og Kristinn Aspelund, framkvæmdastjóri Ankeris ehf. og stjórnarmaður í Samtökum sprotafyrirtækja. Fyrsti varamaður verði Kolbrún Þ. Pálsdóttir, prófessor og forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, og annar varamaður verði Stefán Þór Helgason, sviðsstjóri nýsköpunar og viðskiptaþróunar hjá Ríkiskaupum. Aðalfundur Vísindagarða Háskóla Íslands ehf. verður haldinn 27. mars 2026 og er skipunartími stjórnar til aðalfundar 2027.
– Samþykkt.
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið mánudaginn 23. mars kl. 16.00.