Skip to main content
19. maí 2026

Vel sóttur meistararitgerðadagur

Vel sóttur meistararitgerðardagur - á vefsíðu Háskóla Íslands

Rannsókn á viðhorfum nemenda og kennara til sögukennslu, vægi Auðar Haralds í íslenskri bókmenntasögu, stafrænt aðgengi að íslenska menningararfinum og viðhorf Íslendinga til kynhlutlauss máls voru meðal umfjöllunarefna á meistararitgerðadegi Hugvísindasviðs sem haldinn var í Eddu 15. maí síðastliðinn.

Dagskráin var öllum opin og haldin í þremur samhliða málstofum þar sem kynntar voru rannsóknir á fjölmörgum sviðum hugvísinda, svo sem í annarsmálsfræðum, bókmenntafræði, ensku, fornleifafræði, guðfræði, hagnýtri ritstjórn og útgáfu, heimspeki, kvikmyndafræði, listfræði, máltækni, málvísindum, menningarfræði, menningarmiðlun, miðaldafræði, sagnfræði og þýðingarfræði, auk nýrra verkefna í ritlist. Dagurinn var vel sóttur af kennurum, nemendum og gestum þeirra sem kynntu lokaverkefni sín.

Meistararitgerðadagar Hugvísindasviðs voru fyrst haldnir í fyrra og fara nú fram þrisvar á ári. Á Skemmunni er hægt að nálgast yfirlit yfir meistararitgerðir sem skrifaðar hafa verið við Hugvísindasvið.