Skip to main content
24. apríl 2026

Varði doktorsritgerð um prédikun á tímum átaka og áfalla

Varði doktorsritgerð um prédikun á tímum átaka og áfalla - á vefsíðu Háskóla Íslands

Fritz Már Jörgensson Berndsen hefur varið doktorsritgerð sína í guðfræði, Áföll, vald, samskipti: Upplifun prédikarans á átakatímum í ljósi prédikunarfræði, við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Ritgerðin var unnin undir leiðsögn Sigríðar Guðmarsdóttur, prófessors í guðfræði við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd Hjalti Hugason, prófessoer emeritus við Háskóla Íslands, Pétur Pétursson, prófessor ermeritus við Háskóla Íslands og Þorbjörn Broddason, prófessor emeritus við Háskóla Íslands.

Andmælendur við vörnina voru Rúnar Vilhjálmsson, prófessor í félagsfræði við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands og Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, aðjunkt í guðfræði við Háskóla Íslands. Arnfríður Guðmundsdóttir, deildarforseti Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands 20. apríl.

Um rannsóknina

Doktorsrannsóknin er þverfagleg og snertir bæði félagsfræði og guðfræði. Ritgerðin byggir á eigindlegri viðtalsrannsókn þar sem rætt er við presta um prédikun á tímum átaka og áfalla. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á reynslu presta af því að prédika í kjölfar efnahagshruns, áfalla og erfiðra mála er vörðuðu bæði íslenskt samfélag og þjóðkirkjuna. Ein af stærstu áskorunum rannsóknarinnar snýr að áhrifum ólíkra birtingarmynda valds á prédikun, þar með talið mögulegri valdamiðlun eða misbeitingu valds. Fræðileg umræða um áföll og vald innan prédikunarfræða hefur skapað svigrúm fyrir nýjar rannsóknir á þessum þáttum. Doktorsrannsóknin dregur fram þætti sem hafa áhrif á prédikarann og starf hans og sýnir hvernig samfélagslegar aðstæður og átök innan þjóðkirkjunnar endurspeglast í líðan, prédikun og sjálfsmynd presta.

Um doktorinn

Fritz Már Jörgensson Berndsen lauk BA-, Mag.theol.- og MA-prófi í guðfræði frá Háskóla Íslands. Hann lauk jafnframt námi í sáttamiðlun árið 2019. Fritz er með diplómapróf í félagsráðgjöf frá HÍ, með áfengis- og vímuefnafræði sem sérsvið, auk diplómaprófs í klínískri faghandleiðslu frá félagsráðgjafadeild skólans. Hann starfar nú sem prestur í Keflavíkurkirkju og rekur eigin stofu þar sem hann sinnir handleiðslu, sáttamiðlun, stuðningi og ráðgjöf, auk þess að halda námskeið og fyrirlestra. Fritz Már er einnig stundakennari við Háskóla Íslands.

Hjalti Hugason, Sigríður Guðmarsdóttir, Arnfríður Guðmundsdóttir, Rúnar Vilhjálmsson, Fritz Már Jörgensson Berndsen, Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, Ólöf Garðarsdóttir, Pétur Pétursson og Þorbjörn Broddason.