Varði doktorsritgerð um lýðræðisþróun á Íslandi 1874–1915
Hrafnkell Lárusson hefur varið doktorsritgerð við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Ritgerðin nefnist Lýðræði í mótun. Félagastarf, fjölmiðlun og þátttaka almennings 1874-1915.
Andmælendur við vörnina voru dr. Íris Ellenberger, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, og dr. Páll Björnsson, prófessor við Hug- og félagsvísindasvið Háskólans á Akureyri. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn dr. Guðmundar Hálfdanarsonar, prófessors við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd dr. Ragnheiður Kristjánsdóttir, og dr. Sigurður Gylfi Magnússon, prófessorar við sama skóla.
Steinunn Kristjánsdóttir, forseti Sagnfræði- og heimspekideildar, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands 12. apríl síðastliðinn. (Smellið hér til að skoða myndir frá vörninni).
Um rannsóknina
Markmið rannsóknar Hrafnkels er að greina lýðræðisþróun á Íslandi á tímabilinu 1874–1915 og hvort – og þá hvaða – áhrif almenningur hafði á þessa þróun. Áherslan er á virkni og þátttöku almennings í starfi félaga og félagshreyfinga sem studdu með beinum eða óbeinum hætti við eflingu og þróun lýðræðis og er sjónum sérstaklega beint að Austurlandi. Við greininguna er reynt að varpa ljósi á afstöðu almennings gagnvart lýðræðisstofnunum og kjörnum fulltrúum en einnig er tekið tillit til annarra áhrifaþátta, s.s. þróunar menntunar á tímabilinu, búsetu- og atvinnubreytinga og valdaafstæðna í nærsamfélögum. Í hnotskurn er þessu verki ætlað að vera félags-, menningar- og stjórnmálasöguleg rannsókn á áhrifum (eða áhrifaleysi) almennings á lýðræðisþróun á Íslandi á tímabilinu 1874–1915.
Um doktorinn
Hrafnkell er með MA-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 2006. Hluta af doktorsnámi sínu varði hann við IfiS-PAN í Varsjá (sem er hluti pólsku vísindaakademíunnar), fyrst sem skiptinemi og síðar sem Erasmus+ nemandi. Hrafnkell var forstöðumaður Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2008-2013, verkefnisstjóri hjá Stofnun rannsóknarsetra Háskóla Íslands 2013-2014. Hann starfar nú sem sérfræðingur á sviði þjóðlendurannsókna hjá Þjóðskjalasafni Íslands.